Heilsa

Súkkulaði- og bananasnittur

Rikka skrifar
visir/sæunn
Á heimasíðu hugmyndir að hollustu er að finna margar girnilegar og einfaldar hollustuuppskriftir. Súkkulaði- og bananasnitturnar eru einstaklega bragðgóðar og auðvelt að leika eftir.

Súkkulaði- og bananasnittur



Botn


150 g kókosmjöl

300 g mjúkar döðlur

3 msk hrákakó



Krem

3 bananar, vel þroskaðir

2 msk hrákakó

1 tsk hreint vanilluduft

5 þurrkaðar apríkósur

Til að gera botninn byrjar þú á að blanda öllu gróflega saman í matvinnsluvél og þjappa svo öllu saman í botn móts eða disks. Ég nota ferkantað glerfat sem er 15×25 cm og það passar fullkomlega.Geymdu botninn í frysti á meðan þú snýrð þér að kreminu.Kremgerðin er einföld, þú þarft bara að setja allt hráefnið í matvinnsluvél og láta hana ganga í dágóða stund þar til blandan er mjúk og þétt.

Gott er að smakka kremið því þér gæti þótt þurfa dálitla sætu til viðbótar, t.d. stevíu eða hlynsýróp.

Kakan er svo sett í frysti í 2-3 tíma og ef hún klárast ekki strax í fyrstu atrennu geymist afgangurinn best í frystinum.

Gott getur verið að hella hálfum poka af frosnum bláberjum yfir botninn áður en að kremið er sett á.
 

Tengdar fréttir

Hugarfarið breyttist á einni nóttu

Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir sem heldur úti vef sem hún kallar Hugmyndir að hollustu, segir skyndilausnaloforð og niðursoðnar heilsurannsóknarfréttir einungis flækja leiðina að heilsufarslegri uppbyggingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×