Sujud er orðin þriggja ára

Fréttablaðið Aðsendar greinar 06. febrúar 2012 06:00
Ari Tryggvason
félagi í Íslandi-Palestínu
Ari Tryggvason félagi í Íslandi-Palestínu
Ari Tryggvason skrifar:
Hún fæddist í Zeitun á Gazaströndinni og tilheyrir Samuni ættinni. Fyrir þremur árum fæddist þetta barn, saklaust, óafvitandi um aðstæðurnar sem hún fæddist í. Dagurinn var 8. janúar 2009 á 13. degi 22 daga árása Ísraelshers á Gaza. Sujud fæddist fyrir tímann. Þremur dögum fyrr, 5. janúar voru 29 nánir ættingjar móður hennar, Nawal Samuni drepnir. Ísraelsher drap alls 48 meðlimi Samuni ættarinnar þennan dag.
Sársaukinn er meitlaður í andlit Nawal þegar hún lýsir þessu fyrir blaðamanni El Mundo, Rosa Meneses. Sársaukinn hverfur ekki við að segja frá honum. Hann dvelur áfram innra með hinni ungu móður sem var tvítug þegar hún fæddi Sujud, sársauki sem andlitið getur ekki falið.


Ný innrás í undirbúningi?
Er nýtt stríð gegn Gaza í undirbúningi? Í fréttum RUV 3. janúar segir að svo sé. Hershöfðinginn Tal Hermoni segir að herinn sé reiðubúinn fyrir stórfellda innrás á Gaza, sem „fyrirbyggjandi“ aðgerð, styttra en öflugra stríð. Þetta er framhald fréttar frá því 28. desember. Þar segir hershöfðinginn Benny Gantz að nýtt stríð verði ekki umflúið en hann bar lof á árangur stríðsins fyrir þremur árum, „það tókst fullkomlega“. Þessi árangur á eitt þéttbýlasta svæði veraldar felst í því að 20 þúsund byggingar voru eyðilagðar; heimili, verksmiðjur, bændabýli, bænahús og skólar voru jafnaðir við jörðu. „Ísraelar frömdu þar alvarlega stríðsglæpi m.a. með því að ráðast á stöðvar Sameinuðu Þjóðanna þar sem flóttafólk hafði leitað skjóls og með því að beita fosfór-íkveikjusprengjum. 1.387 Palestínumenn voru drepnir, þar af voru 773 óvopnaðir óbreyttir borgarar, aðallega konur og börn. 257 börn yngri en 16 ára gömul voru drepin. 5.500 voru særðir, meira en 700 konur og 1.800 börn hafa þurft langtíma læknishjálp og endurhæfingu sára sinna.“

Hver er framtíð Sujud, verður hún drepin í næstu innrás? Þar sem „fælingarmáttur“ stríðsins fyrir þremur árum hefur dvínað verður önnur umferð ekki umflúin samkvæmt orðum Benny Gantz, yfirmanni ísraelska heraflans. Það verður að vera sársaukafullt leifturstríð. Það er sem sagt raunveruleg hætta á því að móðir Sujud, hin 23 ára Nawal, þurfi að ganga í gegnum nýtt helvíti. Fleiri úr Samuni ættinni gætu verið drepnir, særðir eða örkumlaðir.


Gaza og Íran
Samhliða árásum Ísraela gegn Gaza, „Operation Cast Lead“ fyrir þremur árum, sendi Pentagon 100 „US-European Command“ (EUCOM) hernaðarsérfræðinga til að aðstoða Ísraela við uppbyggingu nýs, háþróaðs radarvarnarkerfis sem hluta nýrra sameiginlegra eða samofinna loftvarna, svokallað „X-band early warning radar system“. Meðan athygli fjölmiðla beindist að Gaza bar lítið sem ekkert á þessari mikilvægu hernaðaraðgerð. Opinbera skýringin var sú að stjórnin í Tel Aviv hafi beðið um þessa aðstoð, sem vörn gegn hugsanlegri eldflaugaárás frá Íran. (M. Chossudovsky, Global Research, 23. des. 2011)

Hvað er í gangi núna? Miklar væringar milli Íran og vestrænna ríkja, þá sérstaklega Bandaríkjanna-Ísrael. Á sama tíma hóta fulltrúar Ísraelshers nýjum aðgerðum gegn Gaza.


Leyniskyttur skjóta á drengi við störf sín
En það eru alltaf aðgerðir í gangi. Neyðin ýtir ungum mönnum til að afla sér tekna með öllum tiltækum ráðum eins og að safna steypubrotum úr hrundum húsum. Innflutningur á sementi, járni og öðru til byggingaframkvæmda er mjög takmarkaður, nægir einungis fyrir um 5% af endurbyggingarþörfinni. Með sama áframhaldi tæki 78 ár að endurbyggja Gaza. Drengirnir sem reyna að afla sér tekna með söfnun byggingarefnis setja sig í mikla hættu. Breski læknirinn David Halpin tók saman mál 23 drengja sem höfðu orðið fyrir skoti ísraelskra leyniskyttna á tímabilinu 26. mars 2010 til 23. desember sama ár við þessa iðju. Leyniskytturnar miða sérstaklega á útlimi. Flest skotsárin voru á fótleggjum, einstaka á handleggjum og í síðuna. (David Halpin, Global Research, 20. jan. 2011) Það sem hér hefur verið tíundað er algert brot á Genfarsáttmála nr. 1957 þar sem stríðsglæpamenn verða að svara til saka fyrir brot sín. Höfum það í huga að stjórnvöld í Tel Aviv gera ekkert nema fá grænt ljós frá stjórninni í Washington, hvort sem það er árás á Gaza eða á kjarnorkuver Írana.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Komdu út að leika

Við fögnum Degi barnsins í fimmta sinn á morgun en samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar frá því...  

Meira
Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Að draga börn fyrir dómstóla

Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, hvetur til umræðu um hælisleitendur...  

Meira
Aðsendar greinar 26. maí. 2012 06:00

Orð forsetans um "skrautdúkku“

Ólafur Ragnar Grímsson steig fram á svið kosningabaráttunnar nýlega með orðræðu sem um mar...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 14:00

Norðurlönd á norðurskautssvæðinu

Norðurskautssvæðin hafa flust nær miðju heimsstjórnmálanna og munu fá aukið vægi í framtíð...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

"Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins“

Í aðsendri grein Sighvats Björgvinssonar þ. 21. maí 2012 greinir Sighvatur snöfurmannlega ...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þrír menn og króna

Árið 2006 tókum við hjónin lán fyrir íbúð. Við áttum von á okkar fyrsta barni og fannst áb...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 17:00

1000 andlit MS - að lesa bók með lopavettlinga á höndum

Hefur þú lesandi góður reynt að lesa/fletta dagblaðinu eða bók með lopavettlinga á höndum?...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Fiskveiðistjórnunin. Allan sannleikann, takk!

Ógnandi mynd er nú þrengt inn í þjóðarsálina með auglýsingum og fyrirsögnum í fjölmiðlum u...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Friðun í herkví sveitarfélaga og bænda

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, segir í fréttaskýringu (Friðlýsing náttúrusvæða)...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Um vald forsetans

Margt bendir til að vandi okkar Íslendinga um þessar mundir sé ekki síður menningarlegur e...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Gulrætur og villandi samanburður

Fréttablaðið birti þann 8. maí sl. grein um framleiðslu ísraelska fyrirtækisins Protalix B...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Ekki var Huang gerður strámaður

Í blaðaviðtali í ágúst í fyrra kynnti Hjörleifur Sveinbjörnsson, yfirþýðandi í Þýðingarmið...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Þegar tunnurnar þagna

Ég er þreyttur á að vera reiður. En samt var eigninni minni stolið ásamt öllu mínu sparifé...  

Meira
Aðsendar greinar 25. maí. 2012 06:00

Svar við bréfi Sighvats

Í stuttri grein Sighvats Björgvinssonar í Fréttablaðinu 24. maí sl. þar sem hann þakkar fy...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Þú ert stunginn, það er vont og þú færð engan pening

Á hverjum degi láta um 70 manneskjur það yfir sig ganga að víkja í eina klukkustund frá da...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 16:00

Eru Íslendingar vel menntuð þjóð?

Því er iðulega slegið fram sem sönnu að þrátt fyrir bágan efnahag og erfitt ástand hafi Ís...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:48

Óskabarn stjórnvalda: þögull forseti

Það þótti ekki tiltökumál þegar að Viðskiptaráð hreykti sér af því fyrir hrun að stjórnvöl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Takk, Jóhannes

Ég þakka Jóhannesi Gunnarssyni lækni kærlega fyrir svar hans við grein minni um Landspítal...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er allur þjófnaður í matvöruverslunum tilkynntur til lögreglu?

Undanfarin ár hefur talsmaður matvöruverslunar mætt reglulega á útvarpsstöðina Bylgjuna og...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Stjórnmálasamtökum er gert mishátt undir höfði

Mikilvægt er í samfélagsumræðunni að sanngirni sé gætt í samanburði á sýnileika stjórnmála...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Kynheilbrigðismál – ekki er ráð nema í tíma sé tekið!

Gagnleg umræða um kynheilbrigðismál hefur verið í fjölmiðlum að undanförnu. Rætt hefur ver...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 11:53

Nokkur orð um Vaðlaheiðargöng

Töluverðar deilur hafa átt sér stað undanfarin misseri varðandi fyrirhugaða framkvæmd Vaðl...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Er þjóðin bótaskyld vegna gjafakvótans?

Núverandi kvótahafar hafa ítrekað smjattað á málsókn gegn ríkinu verði kvótinn innkallaður...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Boðið upp í dansinn

Úr þessum penna hefir margsinnis dropið, að sagnfræðingar framtíðar muni dæma harðast allr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sagan af brúnu tunnunni

Ég myndi helst vilja eignast hænur til að breyta matarafgöngunum mínum í egg, en get það e...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Við biðjum Skálholti griða

Sagan segir að Gissur Ísleifsson hafi um aldamótin 1100 gefið Skálholtsland með því skilyr...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Sameinum Neytendastofu og talsmann neytenda

Í byrjun árs 2010 boðaði forsætisráðherra að raunhæft væri að fækka 200 stofnunum ríkisins...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Á nútíminn erindi á Bessastaði?

Frá unga aldri hef ég litið á forsetaembættið sem formlegt embætti, þar sem einungis fína ...  

Meira
Aðsendar greinar 24. maí. 2012 06:00

Ferðamenn + viðhald ferðastaða = gistináttaskattur?

Skattlagningarform ferðamannaskatts er ekki í samræmi við markmið samhangandi laga þó að h...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Sujud er orðin þriggja ára