Bíó og sjónvarp

Suicide Squad í fullum skrúða

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá vinstri til hægri: Slipknot (Adam Beach), Captain Boomerang (Jai Courtney), Enchantress (Cara Delevingne), Katana (Karen Fukuhara), Rick Flagg (Joel Kinnaman), Harley Quinn (Margot Robbie), Deadshot (Will Smith), Killer Croc (Adewale Akinnuoye-Agbaje), og El Diablo (Jay Hernandez).

David Ayer, leikstjóri Suicide Squad myndarinnar, hefur birt mynd af leikurum myndarinnar í búningum sínum. Í síðasta mánuði birti hann einnig mynd af Jared Leto í hlutverki Jókersins. Suicide Squad er byggð á teiknimyndasögum DC Comics.

Myndin fjallar um leynilega ríkisstofnun, A.R.G.U.S, sem fær erkiskúrka til að takast á við einstaklega erfið verkefni fyrir styttri dóma eða náðun. Áætlað er að myndin komi út í ágúst á næsta ári.

Ayer birti einnig mynd af Deadshot í fullum skrúða.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×