Innlent

Suðurlandsvegi lokað vegna umferðarslyss

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lögregla og sjúkralið eru að störfum á vettvangi auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna slyssins.
Lögregla og sjúkralið eru að störfum á vettvangi auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna slyssins. Vísir/Pjetur
Það er umferðarslys á Suðurlandsvegi austan við Hvolsvöll. Lögregla og sjúkralið eru að störfum á vettvangi auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna slyssins.

Suðurlandsvegur verður lokaður um óákveðinn tíma vegna slyssins. Vegfarendum er bent á Dímonarveg og Fljótshlíðarveg, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×