Bílar

Subaru fjölgar STI-bílum

Finnur Thorlacius skrifar
Subaru BRZ STI var sýndur var sýndur á bílasýningunni í New York um daginn.
Subaru BRZ STI var sýndur var sýndur á bílasýningunni í New York um daginn.
Margur bílaáhugamaðurinn mun gleðjast yfir nýjustu fréttum úr herbúðum Subaru, en japanski bílaframleiðandinn ætlar á næstunni að fjölga þeim bílgerðum sínum sem fást munu í kraftaútfærslum, en þeir bílar hafa borið og munu bera stafina STI.

Fyrsta viðbótin við hinn klassíska Subaru Impreza WRX STI er þessi Subaru BRZ STI bíll sem sýndur var á bílasýningunni í New York um daginn. Subaru ætlar brátt að bjóða STI-útfærslur á Legacy og Forester og fleiri bílgerðir gætu fylgt í kjölfarið.

Subaru er ekki eini japanski framleiðandinn sem leggur nú aukna áherslu á framleiðslu aflmikilla útgáfa af bílum sínum. Nissan hefur aukið og mun auka meira framboð að Nismo kraftaútfærslum bíla sinna, Honda hefur nýverið loksins kynnt Civic Type R aftur til sögunnar og Toyota ætlar einnig að gera gangskör í framboði kraftaútgáfa.

Sala Subaru af einu gerð STI bíla hingað til, þ.e. Impreza WRX STI hefur aldrei verið í neinu gríðarlegu magni, en á stærsta sölumarkaði hans í Bandaríkjunum seldust 6.500 bílar í fyrra. Svo sú tala sé sett í eitthvert samhengi þá nam heildarsala Subaru í Bandaríkjunum í fyrra 540.000 bílum.

Sala Subaru þar gekk reyndar gríðarlega vel í fyrra og jókst um 21%, en enginn annar bílaframleiðandi frá Japan, né þýskalandi, náði viðlíka aukningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×