Suarez með þrennu í sigri Barcelona

Dagur Lárusson skrifar
Luis Suarez fagnar með Coutinho.
Luis Suarez fagnar með Coutinho. vísir/getty
Luis Suarez skoraði þrennu í stórsigri Barcelona á Girona í kvöld en leikurinn endaði 6-1.

Það voru gestirnir frá Girona sem byrjuðu leikinn betur og komust óvænt yfir strax á 3. mínútu leiksins eftir  varnarmistök hjá Barcelona.

Barcelona var þó ekki lengi að jafna metin en það gerði Suarez á 5. mínútu eftir frábæran undirbúning Lionel Messi.

Messi var síðan sjálfur á ferðinni á 30. mínútu þegar hann bókstaflega lék sér að varnarmönnum Girona og setti boltann í netið.

Barcelona fékk síðan aukaspyrnu rétt fyrir utan teig á 36. mínútu. Lionel Messi tók aukaspyrnuna og setti boltann undir vegginn og beint í markið og staðan því orðin 3-1.

Luis Suarez skoraði síðan fjórða mark Barcelona skömmu fyrir hálfleik eftir frábæran undirbúning Philipe Coutinho.

Það voru síðan fyrrum Liverpool mennirnir tveir sem skoruðu tvö síðustu mörk Barcelona í seinni hálfleiknum og þar með fullkomnaði Luis Suarez þrennu sína.

Eftir leikinn er Barcelona sem fyrr í efsta sæti deildarinnar, nú með 65 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira