Fótbolti

Suárez mætir Real Madrid í fyrsta leik eftir bannið

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Vísir/Getty
Luis Suarez framherji Barcelona nær báðum leikjunum gegn Real Madrid í spænsku deildinni en þetta varð ljóst eftir að leikjaniðurröðunin var klár í dag.

Fyrri leikur Barcelona og Real Madrid fer fram 26. október en daginn áður klárar Suárez fjögurra mánaða bann sitt fyrir að bíta Giorgio Chiellini í leik Ítalíu og Úrúgvæ.

Samkvæmt heimildum Goal.com mun Suarez hinsvegar fá styttra bann þegar Alþjóða íþróttadómstóllinn tekur málið fyrir en leikmaðurinn kærði niðurstöðu FIFA til dómstólsins á dögunum.

Fari svo að Alþjóða íþróttadómstóllinn hafni áfrýjun Suárez leikur hann sinn fyrsta leik gegn Real Madrid. Síðari leikur Barcelona og Real Madrid fer svo fram í mars.

Alfreð Finnbogason og félagar í Real Sociedad hefja leiktíðina á nágrannaslag gegn SD Eibar. Í öðrum leik tímabilsins og fyrsta heimaleik Real Sociedad mætir stjörnum prýtt lið Real Madrid í heimsókn.


Tengdar fréttir

Tilboð Barcelona í Suárez samþykkt

Liverpool staðfesti rétt í þessu að félagið hefði samþykkt tilboð Barcelona í Luis Suárez. Suárez sem er 27 ára hefur samþykkt undir fimm ára samning hjá Barcelona.

Verð stuðningsmaður Liverpool að eilífu

Luis Suárez þakkaði stuðningsmönnum Liverpool fyrir tíma sinn hjá félaginu á heimasíðu Liverpool í dag eftir að félagið samþykkti tilboð Barcelona.

Suarez dæmdur í fjögurra mánaða bann

Luis Suarez var dæmdur í fjögurra mánaða bann frá öllum keppnum fyrir að hafa bitið Giorgio Chiellini í leik Ítalíu og Úrúgvæ á mánudaginn. Bannið nær til félags- og landsliðs Suárez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×