Enski boltinn

Suarez kvaddi vini sína hjá Liverpool

Gerrard fékk Barcelona-treyju.
Gerrard fékk Barcelona-treyju. Instagram-síða Gerrard
Luis Suarez var óvænt mættur á æfingasvæði Liverpool í morgun til þess að kveðja liðsfélaga sína.

Hann kom meðal annars með áritaða Barcelona-treyju sem hann gaf Steven Gerrard. Það sást til Suarez í verslunarferð í Liverpool og spurning hvað hann keypti fyrir sína gömlu vini.

Gerrard var í það minnsta ánægður með treyjuna en spurning með aðra leikmenn Liverpool.

Ekki er vitað hvort Úrúgvæinn ætli sér eitthvað að stoppa í borginni en hann hlýtur að hafa einhvern frítíma enda langt í næsta leik hjá honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×