Innlent

Styttri leið og færri holur með brú yfir Kjálkafjörð

Kristján Már Unnarsson skrifar
N ý ja br ú in yfir Kj á lkafj ö r ð hefur veri ð opnu ð umfer ð samt í mis þ v í sem t í u k í l ó metrar af bundnu slitlagi hafa b æ st á  þ j óð veginn um sunnanver ð a Vestfir ð i. Eftir sj ö vikur ver ð ur svo ö nnur á l í ka samg ö ngub ó t tekin í notkun á sv æð inu .

H
olur og aftur holur, beygjur og blindhæðir og vegurinn svo mjór að sérstaka aðgát þarf þegar bílar mætast. Já, svona er gamli vegurinn sem vegfarendur eru nú að losna við um Kjálkafjörð. Búið er að þvera fjörðinn með fyllingu og 120 metra langri brú.

Klæðningarflokkur frá Borgarverki sást í fréttum Stöðvar 2 við Litlanes vera að ljúka við að leggja slitlagið á síðustu metrana sem nást fyrir veturinn en Suðurverk er aðalverktaki. Gísli Eysteinsson, verkstjóri Suðurverks, lýsti framvindu verksins.


Gísli Eysteinsson, verkstjóri Suðurverks. Fyrir aftan má sjá brúna og fyllingu sem eru að koma yfir Mjóafjörð.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Framundan er að ljúka við hinn meginhluta þessa þriggja milljarða króna verks; að þvera Mjóafjörð, sem gengur inn af Kerlingarfirði. Þar er 160 metra löng brú nánast tilbúin og byrjað að grafa frá henni og síðan tekur við að ljúka fyllingu og grjótvörn að brúnni. 



Gísli segir vonir standa til að leiðin yfir Mjóafjörð verði opnuð um eða upp úr miðjum nóvember. Það stefnir því í að vegfarendur geti ekið yfir Mjóafjörð eftir sjö vikur eða svo. Beðið verður hins vegar fram á næsta vor með að leggja slitlag á síðustu sex kílómetrana.

Brúin yfir Mjóafjörð. Stefnt er að því að hún verði opnuð umferð um miðjan nóvember.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Malarköflum á Vestfjarðavegi fækkar um 24 kílómetra með þessari vegagerð en í staðinn koma 16 kílómetrar af bundnu slitlagi. Stytting leiðarinnar með þessum tveimur fjarðaþverunum er samtals átta kílómetrar. 



Fyrir utan jarðgöng hefur þetta verið langstærsta verkið í vegagerð hérlendis síðustu þrjú ár og skapað allt að sextíu manns vinnu. Sá hópur sér nú fram á verkefnaleysi. Gísli segir ekki vitað um nein ný stórverk framundan í vegagerð hérlendis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×