Styttist í pólitíska ákvörðun 18. mars 2010 04:00 Atvinnuskapandi Þótt E.C.A. eigi enn eftir að ganga frá samningum hérlendis eru myndir frá Keflavíkurflugvelli í kynningu á heimasíðu fyrirtækisins.
Flugmálastjórn er langt komin við að meta umsókn hollenska fyrirtækisins E.C.A. Program um að skrásetja um 20 óvopnaðar orrustuþotur hér á landi. „Það styttist í að hægt sé að taka pólitíska ákvörðun um hvort ríkisstjórn og Alþingi vilji að undirbúningi málsins verði haldið áfram,“ sagði Ingvar Sverrisson, aðstoðarmaður samgönguráðherra. Ekki er talið að íslensk lög og reglugerðir um flugmál nái utan um flugrekstur óvopnaðra orrustuþotna. Í öðrum löndum eru til sérstök lög um heri og hergögn. Ingvar segir að líklega yrði að skrifa sérstakar reglugerðir fyrir vopnlausar orrustuþotur í íslenska flugflotanum ef af komu E.C.A. verður. Áður en starfsemin hefst þyrfti E.C.A. einnig að ljúka samningum við Keflavíkurflugvöll ohf. um 12.000 fermetra aðstöðu í risastóru flugskýli, sem er lítið nýtt eftir að Bandaríkjaher hvarf héðan af landi brott. Áætlað er að endurbætur á flugskýlinu í þágu E.C.A. kosti um 4,5 milljarða króna. Samið hefur verið við ÍAV þjónustu um að annast framkvæmdir E.C.A. hér á landi. ÍAV þjónusta annast einnig ýmis samskipti við íslensk stjórnvöld, að sögn Melville ten Cate. E.C.A. mun einnig hafa lýst áhuga á að semja við utanríkisráðuneytið um aðstöðu á afgirta varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Engu þessara mála er lokið í íslensku stjórnsýslunni. Langmest af þeirri 200 milljarða króna fjárfestingu, sem E.C.A. gerir ráð fyrir að ráðast í til að setja á laggirnar fyrirtæki sem sérhæfir sig í að leigja óvinaflugvélar til þátttöku í heræfingum, tengist kaupum á þotum, stjórnstöðvum, ratsjám og rafeindabúnaði og upplýsingakerfum. Forstjórinn fullyrti í samtali við blaðamann að næg viðskipti væru í boði frá flugherjum og ríkisstjórnum til að standa undir þessari fjárfestingu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins úr stjórnkerfinu hafa forsvarsmenn fyrirtækisins ekki enn sýnt íslenskum stjórnvöldum fram á að fjármögnun áformanna sé lokið. Fyrirtækið er sagt í eigu nokkurra hollenskra og bandarískra einstaklinga, sem eru flestir fyrrverandi orrustuflugmenn. peturg@frettabladid.is
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Marius látinn laus Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Sjá meira