Innlent

Styrktu Laugarás meðferðargeðdeild um 650 þúsund krónur

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Helga Margrét Ólafsdóttir, Magnús Ólafsson, Nanna Briem, Sigríður Ingvarsdóttir, Gyða Magnúsdóttir og Séra Patrik þegar styrkurinn var afhentur.
Helga Margrét Ólafsdóttir, Magnús Ólafsson, Nanna Briem, Sigríður Ingvarsdóttir, Gyða Magnúsdóttir og Séra Patrik þegar styrkurinn var afhentur. mynd/laugarás
Fulltrúar Caritas Íslands afhentu Laugarási meðferðargeðdeild 650 þúsund króna styrk á dögunum en peningurinn var ágóði af tónleikum sem haldnir voru í nóvember síðastliðnum til að styrkja starfsemi deildarinnar.

Í fréttatilkynningu kemur fram að styrkurinn verði nýttur til þess að efla fræðslu- og kynningarstarf á starfseminni og þeim úrræðum sem Laugarásinn meðferðargeðdeild býður upp á. Er styrkurinn þannig mikil lyftistöng fyrir framþróun og áframhaldandi uppbyggingu á starfsemi Laugarássins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×