Innlent

Styrkja nepalskan samstarfsfélaga: Söfnuðu 150 kílóum af fatnaði í dag

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Um 150 kíló af fötum söfnuðust í dag.
Um 150 kíló af fötum söfnuðust í dag.
Starfsmenn Arctic Adventures hafa sett af stað söfnun til stuðnings nepölskum samstarfsfélaga þeirra, Anup Gurung, sem heldur til Nepal á föstudag. Söfnunin er tvíþætt; annars vegar safna þau hlýjum fatnaði og teppum og hins vegar peningum.

Áslaug Ellen Yngvadóttir, starfsmaður hjá Arctic Adventures, segir söfnunina hafa gengið vonum framar. Svo mjög að ekki sé ljóst hvort fleiri föt þurfi en í dag söfnuðust um 150 kíló af fötum, tjöldum og öðrum hjálpargögnum. Margt smátt geri eitt stórt og það hafi sýnt sig og sannað í dag.

Læknir heldur utan með Anup

„Ég setti inn færslu á Facebook í dag þar sem ég auglýsti söfnunina. Það höfðu fjölmargir samband við mig, til dæmis Jónar Transport sem ætlar að flytja allt út. Það var líka læknir sem hafði samband sem ætlar að fara út með Anup. Við auðvitað vonumst til að fagfólk fari með honum og að við náum að safna pening og þannig lagt okkar af mörkum,“ segir Áslaug í samtali við Vísi.

„Anup er mjög þekktur í Nepal, fyrir félagsstarf og annað. Honum fannst hann ekki gera nóg hér heima og ákvað þess vegna að fara út. Við tókum okkur þá nokkur saman og ákváðum að styrkja hann. Þetta er lítið verkefni sem hann sjálfur mun stjórna og er með nokkra sem ætla að hjálpa sér,“ segir hún en Anup fer til Gorkha hinn 1.maí næstkomandi.

Áslaug ber sterkar taugar til Nepal, en þangað hefur hún ferðast nokkrum sinnum.

Þeim sem vilja leggja söfnuninni lið er bent á að hafa samband við Áslaugu í gegnum netfangið aslaugy@gmail.com eða info@adventures.is

Reikningsnúmerið er eftirfarandi:

Kt: 010177-3679

0130-05-060479

ATH! SOS! UPDATE:Ef þið getið komið með fötin á söludesk Arctic Adventures á Laugavegi 11 þá munum við sækja þau þangað...

Posted by Áslaug Ellen G Yngvadóttir on 27. apríl 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×