Viðskipti innlent

Stýrivextir Seðlabankans verða óbreyttir

Stýrivöxtunum hefur ekki verið breytt á síðustu 14 fundum Peningastefnunefndar Seðlabankans.
Stýrivöxtunum hefur ekki verið breytt á síðustu 14 fundum Peningastefnunefndar Seðlabankans. Vísir/Pjetur
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum. Vext­irnir hafa verið óbreytt­ir frá nóvembermánuði 2012. 

Í rökstuðningi nefndarinnar segir að nokkuð hafi dregið úr hagvexti á fyrri hluta ársins en þróunin hafi þó í meginatriðum verið í samræmi við ágústspá Peningamála.

„Verðbólga, sem mælist nú 1,8%, hefur verið undir markmiði í átta mánuði samfleytt og horfur eru á minni verðbólgu næstu mánuði en spáð var í ágúst. Verðbólguvæntingar hafa þokast nær markmiði að undanförnu en langtímavæntingar eru enn nokkuð yfir því. Gjaldeyrisinnstreymi hefur haldið áfram en gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans hafa stuðlað að stöðugleika krónunnar," segir í yfirlýsingu Peningastefnunefndar.

„Aðhald peningastefnunnar hefur aukist meira en áður var búist við samfara hraðari hjöðnun verðbólgu og lækkun verðbólguvæntinga. Nokkur óvissa er þó um túlkun haggagna sakir breyttra uppgjörsaðferða þjóðhagsreikninga sem eykur tímabundið vandann við mat á æskilegu taumhaldi peningastefnunnar. Kröftugur vöxtur innlendrar eftirspurnar á komandi misserum og vaxandi spenna á vinnumarkaði gætu eftir sem áður leitt til aukins verðbólguþrýstings og orðið til þess að nafnvextir Seðlabankans þyrftu að hækka."

Vextir Seðlabanka Íslands verða samkvæmt þessu sem hér segir:

Daglán: 7,0%

7 daga veðlán: 6,0%

Viðskiptareikningar: 5,0%

7 daga bundin innlán: 5,25%






Fleiri fréttir

Sjá meira


×