Viðskipti innlent

Stýrivextir Seðlabankans verða óbreyttir

Haraldur Guðmundsson skrifar
Stýrivöxtunum hefur ekki verið breytt á síðustu þrettán fundum Peningastefnunefndar Seðlabankans.
Stýrivöxtunum hefur ekki verið breytt á síðustu þrettán fundum Peningastefnunefndar Seðlabankans. Vísir/GVA
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum. 

Í tilkynningu nefndarinnar um ákvörðunina segir að efnahagshorfur til næstu þriggja ára séu samkvæmt nýrri spá Seðlabankans sem birtist í dag í stórum dráttum svipaðar og spáð var í maíhefti Peningamála. Horfur eru þó á að vöxtur innlendrar eftirspurnar verði ívið meiri í ár og út spátímann. Slakinn í taumhaldi peningastefnunnar sé líklega horfinn og miðað við grunnspá bankans sé útlit fyrir að núverandi vaxtastig dugi til að halda verðbólgu í markmiði. Kröftugur vöxtur innlendrar eftirspurnar á komandi misserum og vaxandi spenna á vinnumarkaði geti þó leitt til aukins veðrbólguþrýstings og orðið til þess að nafnvextir bankans þyrftu að hækka frekar.

„Verðbólguhorfur hafa heldur batnað frá maíspánni og útlit er fyrir að verðbólga verði nálægt markmiði á spátímanum. Framleiðsluspenna myndast seinna og verður ekki eins mikil og í síðustu spá. Verðbólguvæntingar hafa lítið breyst að undanförnu og eru enn yfir markmiði ef horft er til lengri tíma," segir í tilkynningu Seðlabankans um vaxtaákvörðunina

„Gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans undanfarið ár hafa stuðlað að auknum stöðugleika krónunnar. Á þessu ári hefur bankinn keypt gjaldeyri verulega umfram það sem hann hefur selt bæði í reglulegum kaupum og óreglulegum viðskiptum. Stefnt er að því að regluleg kaup haldi áfram í núverandi umfangi svo lengi sem aðstæður breytast ekki umtalsvert. Eftir sem áður mun Seðlabankinn beita óreglulegum viðskiptum í því skyni að draga úr sveiflum í gengi krónunnar."

Vextir Seðlabanka Íslands verða samkvæmt þessu sem hér segir:

Daglán: 7,0%

7 daga veðlán: 6,0%

Viðskiptareikningar: 5,0%

7 daga bundin innlán: 5,25%






Fleiri fréttir

Sjá meira


×