Viðskipti innlent

Stýrir 450 manna fyrirtæki á daginn og ríður út á kvöldin

sæunn gísladóttir skrifar
Bergþóra Þorkelsdóttir er menntaður dýralæknir en hefur sinnt stjórnunarstöðum síðustu tuttugu ár.
Bergþóra Þorkelsdóttir er menntaður dýralæknir en hefur sinnt stjórnunarstöðum síðustu tuttugu ár. vísir/gva
„Nýja starfið leggst svakalega vel í mig, það er mikið af skemmtilegu fólki að vinna þarna og mörg tækifæri að takast á við,“ segir Bergþóra Þorkelsdóttir sem á dögunum var ráðin forstjóri ÍSAM. Um 450 manns starfa hjá samstæðunni sem er ein af elstu heildsölum landsins.

Bergþóra tók við starfinu í síðustu viku af Agli Ágústssyni. „Ég er búin að vera að eyða þessum fyrstu dögum í að sjá sem flesta af starfsfólkinu og líst gríðarlega vel á,“ segir Bergþóra.

Bergþóra er menntaður dýralæknir en hún hefur einnig stundað nám í markaðsfræðum við Chart­ered Institute of Marketing í Bretlandi og í rekstrar- og viðskiptafræði við Háskóla Íslands.

Hún hefur sinnt stjórnunarstörfum í rúm tuttugu ár. Bergþóra gegndi stöðu framkvæmdastjóra hjá Fastusi ehf., dótturfélagi ÍSAM, frá árinu 2012. Fyrir þann tíma starfaði hún sem framkvæmdastjóri hjá Líflandi og Kornaxi.

„Ég vann aðeins sem dýralæknir fyrir mörgum árum og hef líka unnið við tengd störf, við gæðaeftirlit og svoleiðis í gamla daga. Svo tóku örlögin í taumana og stefndu mér í þessa átt. Þetta er eins og gengur á Íslandi, tækifærin koma og þá einhvern veginn beinist maður í eina átt frekar en aðra. Ég beindist strax inn á stjórnunarbraut og áttaði mig á því að þar ætti ég heima og hef leitast við að efla mig þar,“ segir Bergþóra.

Bergþóra er gift Auðuni Hermannssyni mjólkurverkfræðingi en hann starfar sem framleiðslu- og tæknistjóri hjá Mjólkursamsölunni. Þau eiga tvær dætur.

Utan vinnu ríður Bergþóra út en hún á hesta. Hún telur nauðsynlegt að fara út í náttúruna til að endurhlaða batteríin. „Ég er hestakona og beini kröftunum þangað þegar ég er ekki að vinna. Ég reyni að komast á bak þrisvar til fjórum sinnum í viku. Við erum í hestunum, hjónin, og börnin okkar eftir því sem hefur hentað þeim,“ segir Bergþóra. Hún stundar einnig líkamsrækt og nýtur þess að vera með fjölskyldu og vinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×