Skoðun

Styðjum Alþjóða björgunarsveitina

Gunnar Bragi Sveinsson skrifar
Í dag, 17. október, kemur fjöldi íslenskra og erlendra sérfræðinga í björgunarmálum saman á ráðstefnu Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Björgun 2014. Þetta er í tólfta sinn sem ráðstefnan er haldin en hún er orðin mikilvægur alþjóðlegur vettvangur um björgunarmál, t.d um aðgerðir á norðurslóðum, aðhlynningu slasaðra, rekstur björgunarsveita, nýjustu tækni við leit og svo má áfram telja.

Á Íslandi er fyrir mikil þekking og reynsla í björgunarmálum og það er mikilvægt að hún komi að notum sem víðast. Ráðstefnan er gott dæmi um hvernig reynslunni er miðlað, auk þess sem hún er okkur áminning um mikilvægi þess að styðja myndarlega við björgunarsveitirnar.

Utanríkisráðuneytið leggur sitt af mörkum og á farsælt samstarf við Slysavarnafélagið Landsbjörgu með því að styðja starfsemi alþjóðabjörgunarsveitar þess. Sá stuðningur er þarft framlag til alþjóðasamstarfs og hefur átt þátt í því að byggja upp jákvæða ímynd lands og þjóðar. Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin hefur farið á vegum íslenskra stjórnvalda til að veita aðstoð á hamfarasvæðum víða um heim. Hún nýtur viðurkenningar á alþjóðavettvangi fyrir dugnað, þekkingu og færni okkar fólks.

Hjá Sameinuðu þjóðunum tekur Slysavarnarfélagið Landsbjörg þátt í að samræma alþjóðlegt hjálparstarf og starf heimamanna á hamfarasvæðum. Landsbjörg er einnig aðili að INSARAG, regnhlífarsamtökum björgunarsveita innan SÞ og gengst undir reglulega úttekt og vottun á þeirra vegum. Þá er íslenska alþjóðabjörgunarsveitin á viðbragðslista Evrópusambandsins þar sem Ísland tekur þátt í almannavarnarsamstarfi þess með aðildinni að EES.

Í síðustu úttekt SÞ á sveitinni í júní sl. fékk íslenska rústabjörgunarsveitin hæstu einkunn. Slík niðurstaða er ekki sjálfgefin; að baki henni liggur þrotlaus vinna, uppbygging á sérhæfðri þekkingu og búnaði. Þetta kom berlega í ljós á Haítí árið 2010, þegar alþjóðabjörgunarsveitin var fyrst allra erlendra sveita á vettvang eftir mikinn jarðskjálfta sem kostaði um 200.000 manns lífið. Sveitin hefur vaxið að reynslu og getu, allt frá því að hún fór fyrst á vettvang árið 1999 í kjölfar jarðskjálfta í Tyrklandi.

Björgunarsveitir landsins vinna mikið og óeigingjarnt starf og hafa bjargað ófáum mannslífunum. Það er ekki sjálfgefið að hópur vel þjálfaðra sjálfboðaliða sé reiðubúinn til þess að sinna neyðarkalli að degi sem nóttu. Þeirra starf byggir á hugsjón og vilja til þess að vera samfélaginu að liði. Okkar stefna er að styðja þá til þess.




Skoðun

Sjá meira


×