Innlent

Styðja við suður-súdanskt flóttafólk

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Elín Jakobína Oddsdóttir og Hólmfríður Garðarsdóttir við störf í Juba, höfuðborg S-Súdan.
Elín Jakobína Oddsdóttir og Hólmfríður Garðarsdóttir við störf í Juba, höfuðborg S-Súdan. Mynd/Rauði krosinn
Rauði krossinn á Íslandi, með stuðningi utanríkisráðuneytisins, kemur til með að styðja við suður-súdanskt flóttafólk í Úganda með fjárstuðningi sem nemur 20 milljónum íslenskra króna.  Um þessar mundir eru tveir sendifulltrúar staddir í Suður-Súdan, þær Elín Jakobína Oddsdóttir og Hólmfríður Garðarsdóttir.

Um er að ræða stuðning við fólk sem dvelur í Bidibidi-flóttamannabúðunum í Yumbe-héraði í norðurhluta Úganda. Stuðningurinn er svar við neyðarkalli Alþjóðasambands landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) sem barst í lok ágúst á þessu ári. Einnig hafa fimm sendifulltrúar starfað á átakasvæðum í Suður-Súdan á rúmu ári til að bregðast við neyðarástandi vegna borgarastyrjaldarinnar þar í landi.

Alvarlegt ástand hefur myndast í Úganda vegna borgarastyrjaldar í Suður-Súdan sem hefur nú staðið yfir í rétt þrjú ár. Talið er að allt að 300 þúsund manns hafa fallið í átökunum og eru hátt í tvær milljónir á flótta vegna þeirra. Þúsundir hafa flúið suður yfir landamærin til Úganda þar sem stjórnvöld eru illa í stakk búin til að taka við miklum straumi flóttafólks.

Framlag Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins veitir rúmlega 11 þúsund einstaklingum nauðsynlega og lífsbjargandi mannúðaraðstoð. Þar á meðal má nefna aðgang að hreinu vatni og dreifingu hreinlætispakka, aðgangur að neyðarskýlum, aðgangur að heilsugæslu til að takmarka heilsufarslega áhættuþætti.

Rauði krossinn á Íslandi hefur undanfarið ár sent fimm sendifulltrúa til átakasvæða í Suður-Súdan til að bregðast við neyðarástandi sem myndast hefur vegna borgarastyrjaldarinnar. 

Elín er skurðhjúkrunarfræðingur og hefur mikla reynslu af sendifulltrúastörfum fyrir Rauða krossins. Hennar fyrsta sendiför var til Haítí í kjölfar jarðskjálftans sem varð árið 2010. Síðan þá hefur hún einnig starfað á átakasvæðum, þar á meðal í Palestínu árið 2014 og í Jemen árið 2015. Hún hefur áður starfað í Suður-Súdan, síðast árið 2014.

Hólmfríður er hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir og einn reynslumesti sendifulltrúi Rauða krossins. Hún hefur starfað að lengri og styttri verkefnum á vegum félagsins í rúmlega 20 ár. Þar á meðal má nefna störf á vettvangi í kjölfar vopnaðra átaka í Afganistan, Bosníu, Tansaníu, Íran og Írak en auk þess hefur hún verið send til starfa vegna neyðarástands í kjölfar náttúruhamfara.

Þær Elín og Hólmfríður hafa verið við störf síðan í byrjun október en fyrir algera tilviljun starfa þær í sama neyðarteymi sem var sent frá Juba, höfuðborgar Suður-Súdans, til að starfa í dreifbýlishéruðum við landamærum landsins við Eþíópíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×