Styðja við réttindi barna 8. maí 2015 17:00 Í fremri röð eru Hermann Ottóson, framkvæmdastjóri Rauða krossins, Þórunn Lárusdóttir, verkefnastjóri Vertu næs hjá Rauða krossinum, Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland og Gestur Steindórsson, verkefnastjóri The Color Run á Íslandi. Í fremri röð eru Guðmundur Hákon Hermannsson, formaður ungmennaráðs Íþróttasambands fatlaðra, Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri The Color Run á Íslandi og Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri hjá lyfjafyrirtækinu Alvogen.
Þrjú íslensk góðgerðarfélög hafa hlotið styrk úr nýjum samfélagssjóði The Color Run og lyfjafyrirtækisins Alvogen sem nýverið var stofnaður til stuðnings réttindum og velferð barna. Fimm milljónum króna verður úthlutað úr sjóðnum og munu Rauði krossinn, UNICEF og Íþróttasamband fatlaðra njóta styrkja að þessu sinni. Öll eiga samtökin það sameiginlegt að vinna að réttindum og velferð barna. Óskað var eftir styrkbeiðnum frá íslenskum góðgerðarfélögum og bárust sjóðnum fjölmargar umsóknir. Eftirfarandi aðilar njóta góðs af The Color Run sem haldið er í fyrsta sinn á Íslandi þann 6. júní næstkomandi. Hlaupið er fimm kílómetrar og fer fram í miðborg Reykjavíkur þar sem litir og gleði ráða ríkjum. UNICEFUNICEF hlýtur tveggja milljóna króna styrk sem mun nýtast í þágu bágstaddra barna um allan heim. Alvogen hefur verið einn af stærstu styrktaraðilum UNICEF á Íslandi síðastliðin ár og styrkt fjölmörg verkefni á vegum samtakanna. Má þar nefna neyðarhjálp á Sahel-svæðinu og menntun ungra stúlkna á Madagaskar.Rauði krossinn The Color Run og Alvogen munu styðja við verkefnið „Vertu næs“ sem ætlað er að vinna gegn fordómum í íslensku samfélagi. Fólk fæðist ekki með fordóma og því er mikilvægt að ná sérstaklega til barna og ungs fólks. Styrkur til Rauða krossins nemur tveimur milljónum króna. Alvogen hefur einnig verið öflugur styrktaraðili Rauða krossins undanfarin ár og styrkti til að mynda rekstur verkmenntaskóla í Sierra Leone um þriggja ára skeið. Nánar um verkefnið á vertunaes.is.Íþróttasamband fatlaðra Styrkur til sambandsins nemur einni milljón króna sem mun meðal annars nýtast við undirbúning og framkvæmd fjölþrautakeppni fatlaðra í samstarfi við frístundaheimili, Nýársmót sambandsins og önnur verkefni sem tengjast fötluðum börnum og unglingum. Alvogen verður einn af samstarfsaðilum sambandsins og mun leggja sérstaka áherslu á verkefni sem tengjast ungum og efnilegum íþróttamönnum með fötlun. Samhliða hlaupinu hefur Alvogen efnt til styrktartónleika í Hörpu þann 6. júní þar sem ágóði miðasölu mun renna til neyðarsöfnunar UNICEF og Rauða krossins vegna náttúruhamfaranna í Nepal og skiptis aðgangseyrir óskertur jafnt á milli félaganna. Gert er ráð fyrir að með tónleikunum safnist fimm milljónir króna, til viðbótar við fjórar milljónir króna sem Alvogen hefur nú þegar látið renna til neyðarsöfnunar UNICEF. Fimm milljónir verða greiddar til samtakanna á næstum dögum af Alvogen þannig að væntanleg innkoma tónleikanna nýtist strax við hjálparstarf. UNICEF og Rauði krossinn standa bæði að neyðarsöfnun í Nepal og nálgast má nánari upplýsingar um safnanir á heimasíðum þeirra.
Hjálparstarf Jarðskjálfti í Nepal Nepal Tengdar fréttir Þrír skiptinemar hlupu í Color Run: "Mun meiri skemmtun heldur en íþróttakeppni“ Skiptinemar í Bandaríkjunum tóku þátt í The Color Run þar úti eftir að þeir uppgötvuðu að þau kæmust ekki í það hér heima. 20. mars 2015 18:54 Góð hlaup fyrir byrjendur Elísabet Margeirsdóttir ræðir hlaupasumarið sitt. 6. maí 2015 14:15 Yfir 4.000 miðar seldir í The Color Run Tveir þriðju miðanna sem í boði verða hafa selst nú þegar. 7. apríl 2015 13:30 Fjöldi tók þátt í dansprufum fyrir The Color Run Dansunnendum var boðið upp á að taka þátt í hlaupinu. 28. apríl 2015 16:45 Mest lesið Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lífið Björgólfur og Skúli í stuði í Feneyjum Lífið Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Lífið Lekker hæð listakonu til sölu Lífið Jón Jónsson selur glæsihús á Seltjarnarnesi Lífið Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr Snertingu Bíó og sjónvarp Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Lífið „Stundum finnst mér ég getað sigrað heiminn“ Lífið Svakalegasta atvinnuumsókn sem sést hefur á FM957 Lífið Seldi upp á útgáfutónleika án útgáfu Tónlist Fleiri fréttir Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Sjá meira
Þrír skiptinemar hlupu í Color Run: "Mun meiri skemmtun heldur en íþróttakeppni“ Skiptinemar í Bandaríkjunum tóku þátt í The Color Run þar úti eftir að þeir uppgötvuðu að þau kæmust ekki í það hér heima. 20. mars 2015 18:54
Yfir 4.000 miðar seldir í The Color Run Tveir þriðju miðanna sem í boði verða hafa selst nú þegar. 7. apríl 2015 13:30
Fjöldi tók þátt í dansprufum fyrir The Color Run Dansunnendum var boðið upp á að taka þátt í hlaupinu. 28. apríl 2015 16:45