Golf

Stutta spilið bjargaði Spieth á Byron Nelson

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Til hægri ljúfurinn.
Til hægri ljúfurinn. Vísir/Getty
Jordan Spieth er í öðru sæti, tveimur höggum á eftir Brooks Koepka fyrir lokahringinn á AT&T Byron Nelson meistaramótinu í golfi sem fer fram í Texas um helgina.

Spieth lék þriðja hringinn á þremur höggum undir pari þrátt fyrir að lenda í töluverðum vandræðum.

Ben Crane sem leiddi eftir tvo hringi náði sér aldrei á strik á þriðja hring í dag og lék á tveimur höggum yfir pari. Er hann sex höggum á eftir Koepka fyrir lokahringinn.

Spieth þurfti að treysta á stutta spilið í dag þar sem hann hitti brautina aðeins sjö sinnum í fjórtán tilraunum.

Voru teighöggin hans út á þekju í gær en honum tókst að bjarga sér með stutta spilinu og kom inn í hús á þremur höggum undir pari.

Spieth á því enn möguleiki að vinna þetta mót í fyrsta sinn á ferlinum en besti árangur hans á AT&T Byron Nelson mótinu er sextánda sæti þegar hann var sextán ára.

Sergio Garcia, Matt Kuchar og Bud Cauley eru einu höggi á eftir Spieth í 3-5. sæti en það skyldi enginn útiloka að þeir blandi sér í baráttuna á lokadeginum.

Helstu tilþrif frá þriðja leikdegi má sjá í myndbandi hér fyrir neðan.

Lokadagur AT&T Byron Nelson meistaramótsins er í beinni útsendingu á Golfstöðinni í kvöld og hefst útsending 17:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×