Stutt og laggott í Hollywood 30. nóvember 2006 18:00 Dennis Rodman og Carmen Electra voru hjón í 10 daga áður en slitnaði upp úr.
Hollywood hefur aldrei verið þekkt fyrir að ala af sér löng og farsæl hjónabönd því flest stjörnuhjónabönd enda í skilnaði fyrr en seinna. Nokkur hjónabönd skera sig úr að því leyti að hafa ekki enst árið. Margir segja að fyrsta árið í hjónabandi sé eins og að svífa á bleiku skýi en það á aldeilis ekki við um neðangreind pör. Hvort það sé í tísku í Hollywood er ekki gott að segja en stjörnunum virðist vera mikið í mun að gifta sig og eru svo enn fljótari að skilja.Fjórir mánuðirBritney Spears á heiðrinn að stysta hjónabandi í sögu Hollywood, 55 klukkutímar í heildina.Þriggja ára krísan í hjónaböndum er vel þekkt og eru það mörg hjónabönd sem ganga í gengum erfiðleika þá en í Hollywood þekkist þessi sama krísa sem fjögurra mánaða krísan. Tvö þekkt hjónabönd hafa nú liðið undir lok eftir einungis fjögurra mánaða líftíma. Óvænt hjónaband leikkonunnar Renee Zellweger og kántrísöngvarans Kenny Chesney entist aðeins í fjóra mánuði en parið þekktist ekki lengi áður en það ákvað að ganga í það heilaga. Það er einmitt annað dæmi um hjónabönd í Hollywood, oftar en ekki er hugmyndin um hjónabandið ekki vandlega úthugsuð áður en hún er framkvæmd.Seinni parið eru Kid Rock og Pamela Anderson sem sóttu um skilnað fyrir stuttu. Parið gifti sig á fjórum mismunandi stöðum í sumar en ástin kulnaði hjá þeim fjórum mánuðum síðar og hafa þau nú sótt um skilnað hvort frá öðru.Óásættanlegur ágreiningurJason Alexander fyrrverandi eiginmaður Britney Spears og varð frægur á meðan málið gekk yfir í fjölmiðlum.Stallsystur Pamelu Anderson, Carmen Electra hefur einnig sett sitt mark á hjónabandssögu í Hollywood. Hún giftist körfuboltakappanum Dennis Rodman árið 1998 en hjónabandssælan entist ekki lengur en í tíu daga. Þá sótti Electra um skilnað og bar fyrir sig „óásættanlegur ágreiningur" sem ástæðu skilnaðarins. Það er ein algengasta afsökunin í Hollywood fyrir hjónabandslokum og notar fólk og fjölmiðlar þessi orð óspart. Það stysta í sögunniFjögurra mánaða krísan Pamela Anderson og Kid Rock áður en slitnaði upp úr hjónabandinu eftir stuttan tíma.MYND/AFPPoppprinsessan Britney Spears á metið í stysta hjónabandi sögunnar. Hún giftist æskuvini sínum Jason Alexander í Las Vegas en segir sjálf að hún hafi verið í „annarlegu ástandi" það kvöld. Hjónabandið entist í 55 klukkutíma og Spears hefur því ekki beðið lengi eftir að láta ógilda hjónabandið eftr brúðkaupsnóttina. Ekki fylgdi sögunni hvað vininum Jason Alexander fannst um málið en hann fékk sína 15 mínutna frægð á meðan málið gekk yfir í fjölmiðlum.Spears er nú búin að skilja í annað skiptið á ævinni en hjónaband hennar og Kevin Federline entist í tvö ár. Það er því spurning hvernig henni gengur næst? Allt er þegar þrennt er, ekki satt?renee zellweger var of fljót á sér þegar hún giftist kántrísöngvaranum Kenny Chesney eftir að hafa þekkt hann í stuttan tíma. Hjónabandið entist í fjóra mánuði sem er algengur líftími í Hollywood. . Kenny chesney Giftist Renee Zellweger en hefur lítið sést eftir að þau skildu. .
Menning Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira