Bílar

Stutt í Golf R 400

Finnur Thorlacius skrifar
Volkswagen R 400 verður snaröflugt tryllitæki.
Volkswagen R 400 verður snaröflugt tryllitæki.
Hér hefur áður verið sagt frá hugmyndum Volkswagen að smíði enn aflmeiri Golf bíls en 300 hestafla Golf R kraftabílsins. Volkswagen hefur sýnt Golf R 400 á bílasýningum, en margir hafa ætlað að þessi bíll færi engu að síður aldrei í framleiðslu.

Það hefur þó verið staðfest og það sem meira er, það eru ekki nema örfáir mánuðir í komu hans að sögn yfirmanns vélarframleiðslu Volkswagen, Dr. Heinz-Jakob Neusser. Golf R 400 er eins og nafnið bendir til með 400 hestöfl undir húddinu og fjöðrun og bremsur sem hæfa svo miklu afli.

Búist er við því að Golf R 400 verði sýndur í endanlegri mynd á bílasýningunni í Frankfurt í september. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×