Enski boltinn

Sturridge sneri aftur með stæl | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Það tók Daniel Sturridge aðeins tólf mínútur að skora gegn West Ham.
Það tók Daniel Sturridge aðeins tólf mínútur að skora gegn West Ham. Vísir/Getty
Daniel Sturridge sneri aftur í lið Liverpool og skoraði seinna mark liðsins í 2-0 sigri á West Ham United á Anfield Road í dag.

Mörkin í leiknum má sjá hér að neðan.

Með sigrinum komst Liverpool upp fyrir West Ham í 7. sæti deildarinnar. Rauði herinn er nú aðeins fjórum stigum frá Meistaradeildarsæti.

Raheem Sterling skoraði fyrra mark Liverpool á 51. mínútu eftir sendingu frá Coutinho.

Á 68. mínútu kom Sturridge inn á sem varamaður fyrir Lazar Markovic og tólf mínútum síðar skoraði hann annað mark Liverpool eftir sendingu frá Coutinho sem spilaði mjög vel í dag.

Þetta var fyrsti leikur Sturridge frá því hann lék með enska landsliðinu gegn því norska í vináttulandsleik 3. september en hann hefur glímt við erfið meiðsli.

Liverpool 1-0 West Ham Liverpool 2-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×