Sport

Sturla í stuði í undankeppninni í stórsvigi | Náði 2. sætinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hér sést Sturla Snær Snorrason fagna í markinu með fjölskyldu sinni.
Hér sést Sturla Snær Snorrason fagna í markinu með fjölskyldu sinni. Mynd/Fésbókarsíða SKÍ
Sturla Snær Snorrason stóð sig frábærlega í undankeppni karla í stórsvigi á heimsmeistaramótinu í alpagreinum.

Sturla Snær náði öðru sætinu en 25 bestu komust áfram í aðalkeppnina sem fer fram á morgun.  

Sturla Snær varð tíundi eftir fyrri ferðina þar sem hann var 1,14 sek. á eftir efsta manni. Hann var því í góðum málum fyrir seinni ferðina en gerði þar enn betur.  

Hann náði nefnilega besta tímanum af öllum í seinni ferðinni og tryggði þér með því annað sætið.

Sturla Snær fór fyrri ferðina á 59,23 sekúndum en þá síðari á 1:00.19 mín.

Sturla varð 0,36 sekúndum á eftir Hollendingnum Steffan Winkelhorst.

Sturla Snær var einn af fjórum Íslendingum í undankeppninni en hann var sá eini sem náði að klára báðar ferðir.

Magnús Finnsson varð 41. eftir fyrri ferð en kláraði ekki seinni ferðina ekki frekar en Kristinn Logi Auðunsson sem var 69. eftir fyrri ferðina. Jón Gunnar Guðmundsson náði ekki að klára fyrri ferðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×