Tíska og hönnun

Sturla Atlas hellir sér í vatnið

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Sturla Aqua er a.m.k. ný fatalína frá Sturlu Atlas. Kannski meira.
Sturla Aqua er a.m.k. ný fatalína frá Sturlu Atlas. Kannski meira. Vísir/Kjartan Hreinsson
Ein af dularfyllri sýningum á Hönnunarmars er Sturla Aqua sem opnaði í fatabúðinni Húrra Reykjavík um kl. 18 í kvöld. Aðalsprautan á bakvið hana er Sigurbjartur Sturla Atlason söngvari hljómsveitarinnar Sturla Atlas.

Innan Hönnunarmiðstöðvar hafa verið vangaveltur um hvort poppsöngvarinn og félagar hans ætli sér jafnvel að selja vatn í flöskum? Ef svo, yrði það þá bara kranavatn í nýjum umbúðum eins og var gert á Hótel Adam?

„Ekki enn...  maður veit samt ekki hvað mun gerast,“ segir Sigurbjartur. „Það er óvíst hvað Sturla Aqua mun þróast út í en við verðum með nýja fatalínu. Á sýningunni verða ljósmyndir sem krystallar þessa hugmynd“.

Hann tekur þó ekki fyrir það að hella sér út í vatnsbransann.

„Við ætlum að taka púlsins á þessu og leyfa því að verða að því sem það þróast út í. Það hafa margir spurt okkur eftir að þeir heyrðu nafnið hvort við séum að fara hanna vatnsflöskur. Það virðist vera heilmikil eftirspurn eftir því þannig að það er frekar líklegt að við framleiðum einhverjar svoleiðis. Ég veit þó ekki alveg í hvaða formi það verður. Fólk er þyrst, sólgið í vatnið,“ segir Sigurbjartur að lokum.

Kjartan Hreinsson tók allar myndirnar á ljósmyndasýningunni en Sigurður Oddson hannar allt útlit fyrir nýju Sturlu Aqua línuna. Sýningin opnaði í kvöld kl. 18 og mun vera opinn yfir helgina.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið við lagið Snowin'.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×