Gagnrýni

Stund sem aldrei verður endursköpuð

Guðrún Ansnes skrifar
Stór stund fyrir Agent Fresco í Silfurbergi á fimmtudagskvöld.
Stór stund fyrir Agent Fresco í Silfurbergi á fimmtudagskvöld.
Ég fór í algjört „black-out“ á sviðinu og rankaði við mér í næstsíðasta laginu, og hugsaði „fólk verður brjálað, að fá bara tíu mínútur eftir að hafa borgað sig inn. Tíminn leið fáránlega hratt,“ segir Arnór Dan, söngvari Agent Fresco, sem hélt útgáfutónleika plötunnar Destrier í Silfurbergi á fimmtudagskvöld.

Segir hann tilfinningarnar hafa borið sig ofurliði þar sem hann stóð á sviðinu ásamt hljómsveitinni og hópi hljóðfæraleikara. „Það er nefnilega eitt að semja plötu, sem tekur þrjú, fjögur ár en allt annað að flytja hana „live“ eins og við gerðum þarna, með einvalaliði hljóðfæraleikara, vinum okkar, sem eru með í að skapa þetta einstaka „sound“. Þetta er eitthvað sem verður ekki endurtekið, og sum þessara laga verða ekki flutt aftur,“ segir Arnór og auðmýktin leynir sér ekki í rámri röddinni.

Arnór var enn að ná sér niður eftir upplifelsi útgáfutónleikanna. Hann hyggst nú bregða sér í verðskuldað frí.
„Ég var sjálfur með gæsahúð sem varði frá fyrsta laginu á æfingunni sem við tókum fyrr um daginn, og hún er eiginlega ekki farin.“

Segist Arnór hafa farið í ansi hreint fjöruga ferð um ranghala tilfinningaskalans og kannað þar flesta króka og kima. „Ég kom sumsé allt að því raddlaus heim úr tónleikaferð frá Þýskalandi og var við það að farast úr stressi tveimur dögum fyrir tónleikana. Allt orðið uppselt og maður færir ekki svona,“ útskýrir hann og bætir við að hann hafi þurft að hafa sig allan við að þegja og passa röddina fram að stóru stundinni.

„Svo gekk þetta bara upp, og þarna kláruðum við ferlið sem felst í að búa til plötu. Eftir tónleikana get ég loksins sagt að platan sé klár,“ segir Arnór og undirstrikar að sveitin sé stútfull af þakklæti í allar áttir. „Þetta hefur verið tryllt, sjúklegt og fallegt tímabil. Fimmtudagskvöldið er í heild sinni stund sem ég mun aldrei gleyma.“

Dómur

Það var öllu tjaldað til í Silfurbergssalnum í Hörpu á fimmtudagskvöldið þegar hljómsveitin Agent Fresco fagnaði útgáfu sinnar annarrar breiðskífu með heljarinnar tónleikum. Platan Destrier kom út í ágústmánuði og varð strax ein vinsælasta plata landsins.

Platan var lengi í smíðum enda mikið lagt í hana en fyrsta breiðskífa sveitarinnar, A Long Time Listening, kom út árið 2010 og því var sannarlega kominn tími á nýja plötu frá þessari frábæru hljómsveit.

Á tónleikunum var Destrier leikin í gegn en hljómsveitin hafði fengið frábært tónlistarfólk með sér til þess að gera þessa tónleika einstaka. Með þeim Tóta, Kela, Arnóri og Vigni voru á sviðinu strengjakvartett, blásarakvartett og fleiri flottir hljóðfæraleikarar en alls voru fimmtán manns á sviðinu. Að sjá þennan hóp samankominn á sviðinu við að leika tónlistina var stórkostleg upplifun og var undirritaður orðlaus um stund yfir því hversu flott þetta var allt saman.

Það voru fleiri orðlausir, því enginn á sviðinu tjáði sig á milli laga, það var greinilegt að ekki mátti spilla þessu heildarverki með blaðri á milli laga. Arnór Dan, söngvari sveitarinnar, tók það fram eftir að flutningi plötunnar lauk, hversu erfitt það hefði verið að þegja á milli laga en hann spjallaði loks við áhorfendur þegar þeir félagar léku aukalögin tvö, sem voru A Long Time Listening og Eyes of a Cloud Catcher.

Niðurstaða: Algjörlega frábærir tónleikar með einni bestu hljómsveit sem Ísland hefur átt. Allir sem komu að tónleikunum eiga hrós skilið, þar sem fagmennskan var í fyrirrúmi. Bravó, Agent Fresco, bravó!

Gunnar Leó Pálsson dæmdi.


Tengdar fréttir

Fagna útgáfu Destrier

Agent Fresco efnir til hlustunarteitis í Bíói Paradís í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×