Sport

Stúlkurnar fengu brons á EM

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Íslensku stúlkurnar með bronsverðlaunin í kvöld.
Íslensku stúlkurnar með bronsverðlaunin í kvöld. vísir/valli
Stúlknalandslið Íslands í hópfimleikum hafnaði í þriðja sæti og vann til bronsverðlauna í unglingaflokki á Evrópumótinu sem haldið er í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalshöll.

Okkar stúlkur fengu í heildina 53,050 í einkunn (21,350 fyrir gólfæfingar, 15,40 fyrir æfingar á dýnu og 16,250 fyrir stökk).

Mikil spenna var undir lokin þegar aðeins áttu eftir að kynna einkunn Dana fyrir gólfæfingar og einkunn Íslands fyrir æfingar á dýnu.

Svo fór að Danirnir unnu nokkuð sannfærandi sigur og fögnuðu þær dönsku vel og innilega, enda horfðu þær upp á íslensku stúlkurnar hirða gullið á þeirra heimavelli fyrir tveimur árum.

Svíar höfnuðu í öðru sæti og fengu silfur, en Noregur, Finnland og Bretland komu í næstu sætum á eftir Íslandi.

Á morgun fer fram úrslitakeppni í fullorðnisflokki þar sem stelpurnar hafa einnig Evrópumeistaratitil að verja.

Evrópumeistarar Dana með sigurlaunin.vísir/valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×