Innlent

Stukku fyrir bíla í YouTube-leik

Atli Ísleifsson skrifar
Í tilkynningu frá lögreglu segir að lögreglumenn hafi rætt við drengina sem viðurkenndu að hafa verið að stökkva út á götuna.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að lögreglumenn hafi rætt við drengina sem viðurkenndu að hafa verið að stökkva út á götuna. Vísir/Pjetur
Lögregla á Suðurnesjum hafði í gærkvöld afskipti af hópi ungra drengja sem staðinn var að leik við að hlaupa fyrir bíla á Hafnargötu í Keflavík.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að lögreglumenn hafi rætt við drengina sem viðurkenndu að hafa verið að stökkva út á götuna.

„Kváðust þeir hafa séð myndband á Youtube af slíku athæfi og vildu þeir prófa að leika það eftir. Þeim var bent á að svona háttarlag væri stórhættulegt og lofuðu drengirnir að hætta þessu strax. Haft var samband við forráðamenn þeirra, auk þess sem tilkynning var send á barnaverndarnefnd,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×