Erlent

Stuðningsmönnum og andstæðingum Trump laust saman: Börðu á hvor öðrum með prikum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lögreglan skakkar leikinn á milli mótmælenda og stuðningsmanna.
Lögreglan skakkar leikinn á milli mótmælenda og stuðningsmanna. Vísir/AFP
Stuðningsmenn Donald Trump fjölmenntu um götur borga víðsvegar um Bandaríkin til þess að styðja forsetann með friðsömum hætti en í Berkeley í Kaliforníu gekk það ekki áfallalaust fyrir sig, þar sem stuðningsmönnum laust saman við mótmælendur og andstæðinga forsetans. Reuters greinir frá.

Atvikið átti sér stað í almenningsgarði í borginni en hóparnir notuðu prik til þess að berja á hvor öðrum og þá spreyjuðu stuðningsmenn forsetans hinn hópinn með piparspreyi. Berkeley hefur alla tíð þekkt fyrir að vera afar frjálslynd borg og styður meirihluti íbúa Demókrata.

Stuðningsgöngur fyrir forsetann fóru fram í 28 fylkjum Bandaríkjanna á laugardaginn og höfðu skipuleggjendur gefið það út fyrirfram að þeir byggjust ekki við samsvarandi mannfjölda og mætti til að mótmæla forsetanum á fyrstu dögum hans í embætti.

Í mörgum borgum og bæjum mættu ekki fleiri heldur en nokkur hundruð manns til stuðnings forsetanum og víðast hvar voru mótmælendur og andstæðingar fleiri heldur en stuðningsmenn.

„Það eru mikið af reiðum hópum að mótmæla og okkur fannst mikilvægt að sýna stuðning okkar í verki,“ sagðí Peter Boykin, formaður stuðningssamtaka samkynhneigðra fyrir forsetann en hann aðstoðaði við að skipuleggja slíka göngu í Washington borg.

Í Berkeley er talið að alls hafi stuðningsmenn og mótmælendur verið um 200 til 300 talsins og samkvæmt upplýsingu frá lögreglu slösuðust þrír í atvikinu og þá voru fimm manns handteknir, eftir að lögreglan batt enda á slagsmál hópanna tveggja.

Flestar göngurnar gengu þó vandkvæðalaust fyrir sig og ekki kom til átaka á milli hópa en stuðningsmenn forsetans sögðu flestir að þeir væru að styðja forseta sem framkvæmdi það sem hann hefði lofað, meðal annars að gera landamæri ríkisins tryggari. Andstæðingum forsetans var þó tíðrætt um að vera hans á forsetastóli væri á skjön við bandarísk gildi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×