Enski boltinn

Stuðningsmenn Swansea hæstánægðir með Gylfa | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stuðningsmenn Swansea lýstu yfir ánægju sinni með að hafa endurheimt landsliðsmanninn Gylfa Þór Sigurðsson til félagsins.

Swansea mætti Plymouth í æfingaleik í dag og skoraði Gylfi tvö mörk auk þess að leggja upp eitt eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 66. mínútu.

Rætt var við stuðningsmenn Swansea fyrir leikinn fyrir kvöldfréttir Stöðvar 2 og eins og sjá má hér fyrir ofan voru þeir allir hæstánægðir með að fá Gylfa aftur.

Hann lék með liðinu sem lánsmaður frá þýska liðinu Hoffenheim vorið 2012 og skoraði þá sjö mörk í nítján leikjum. Hann var síðar seldur til Totteham en var í vikunni keyptur aftur til Swansea.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×