Erlent

Stuðningsmenn Sanders mótmæla á landsþingi demókrata

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Stuðningsmenn Bernie Sanders ætla ekki að sætta sig við sigur Hillary Clinton.
Stuðningsmenn Bernie Sanders ætla ekki að sætta sig við sigur Hillary Clinton. Vísir/Getty
Stuðningsmenn Bernie Sanders hafa söfnuðust saman þar sem landsþing demókrata fer nú fram í Philadelphiu til þess að mótmæla því að Hillary Clinton verði útnefnd forsetaefni flokksins. Mótmælin voru hávær fyrir utan sem og fyrir innan staðinn þar sem þingið fer fram.

Ræðumenn þurftu að þola það þegar flokksbræður þeirra og systur púuðu í hvert sinn sem Hillary Clinton var nefnd á nafn.

Þessum líst greinilega illa á tvo stærstu forsetaframbjóðendurna í komandi kosningum.Vísir/Getty
Sanders hvatti stuðningsmenn sína að styðja Hillary

Bernie Sanders var á meðal þeirra fyrstu sem hélt ræðu á þinginu og þar hvatti hann kjörmenn flokksins að styðja Hillary Clinton sem forsetaefni flokksins. Hann sagði það að koma í veg fyrir að Donald Trump komist til valda vera mikilvægara en baráttu innan flokksins. Fyrir landsþingið hafði Sanders sent út tölvupóst til þeirra kjörmanna sem studdu hann í tilraun til þess að koma í veg fyrir sundrung.

„Trúverðugleiki okkar sem sameinaður flokkur mun hljóta hnekki ef gestir púa eða snúa baki við forystu flokksins,“ skrifaði hann í tölvupóstinum. „Það er það sem fjölmiðlar vilja sjá. Það er það sem Donald Trump vill sjá.“

Þessi lét svo sannarlega í sér heyra þegar minnst var á Hillary Clinton á landsþingi demókrata í dag.Vísir/Getty
Sanders var beðinn afsökunnar

Stuðningsmenn Sanders eru æfir eftir að tölvupóstur sem var lekið á netinu síðastliðinn föstudag sem sýndu að hátt settir einstaklingar innan flokksins hafi reynt að skemma fyrir kosningabaráttu Sanders. Forystumenn flokksins sendu tölvupóst á alla demókrata í gær þar sem þeir báðu Sanders og stuðningsmenn hans innilegrar afsökunar á þeim ummælum sem láku í fyrrnefndum pósti.

Í kjölfarið sagði Debbie Wasserman Schultz, sem bar ábyrgð á umræddum tölvupósti, upp stöðu sinni sem formaður landsnefndar demókrataflokksins. Hún mun hætta að landsþingi loknu.

Búist er við því að Hillary Clinton taki við útnefningu flokks síns sem forsetaefni demókrata við lok þingsins.


Tengdar fréttir

Púað á Sanders

Tölvupóstslekar frá Demókrataflokknum og Hillary Clinton hafa sett ýmiss konar strik í reikninginn á landsþingi flokksins, þar sem Clinton verður formlega útnefnd forsetaefni hans.

Clinton velur Tim Kaine

Kaine, sem er öldungadeildarþingmaður frá Virginíu, verður varaforsetaefni Hillary Clinton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×