Enski boltinn

Stuðningsmenn Man. Utd kjósa Balotelli leikmann ársins

Mario hefur ekki átt marga góða daga í vetur.
Mario hefur ekki átt marga góða daga í vetur. vísir/getty
Stuðningsmenn Man. Utd og Arsenal hafa tekið höndum saman til þess að stríða Mario Balotelli.

Fjöldi þeirra hefur látið sjá sig á heimasíðu Liverpool síðustu daga til þess að kjósa leikmann ársins.

Allir kjósa þeir Mario Balotelli til þess að stríða honum enda hefur Balotelli ekki beint kveikt í deildinni í vetur með leiftrandi tilþrifum og frábærum mörkum.

Balotelli kostaði Liverpool 16 milljónir punda og er búinn að skora fjögur mörk í 25 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×