Fótbolti

Stuðningsmaður Rostov kastaði banana inn á völlinn | UEFA rannsakar málið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rasismi er stórt vandamál á fótboltaleikjum í Rússlandi.
Rasismi er stórt vandamál á fótboltaleikjum í Rússlandi. vísir/getty
Heðgun stuðningsmanna rússneska liðsins FK Rostov verður líklega tekin til skoðunar hjá aganefnd UEFA.

Rostov mætti PSV Eindhoven á heimavelli sínum, Olimp-2, í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í gær en þetta var fyrsti heimaleikur félagsins í riðlakeppni Meistaradeildarinnar frá upphafi. Leikar fóru 2-2.

Þegar um átta mínútur voru liðnar af leiknum var banana kastað inn á völlinn og hann lá þar í a.m.k. 15 mínútur að sögn FARE Network, sem rannsakar rasisma fyrir UEFA.

Rasismi er þekkt vandamál í rússneskum fótbolta en leikmenn sem eru dökkir á hörund hafa lengi þurft að þola kynþáttaníð í leikjum í Rússlandi.

Rostov hefur þegar lent í vandræðum vegna rasisma stuðningsmanna liðsins á þessu tímabili. Hluti stúkunnar á Olimp-2 var t.a.m. lokaður í gær vegna kynþáttaníðs stuðningsmanna Rostov í leik gegn Ajax í forkeppni Meistaradeildarinnar í síðasta mánuði.

Vyacheslav Koloskov, heiðursforseti rússneska knattspyrnusambandsins, segir að atvik eins og það sem átti sér stað í gær hafi slæm áhrif á ímynd Rússlands sem heldur HM 2018.

„Þessi banani gæti reynst okkur dýr. Við getum ekki liðið svona hegðun, sérstaklega á þessum tímapunkti. Rostov gæti þurft að spila leik fyrir luktum dyrum,“ sagði Koloskov.

Alexei Sorokin, yfirmaður skipulagsnefndar HM 2018, tók annan pól í hæðina og virtist ekki hafa miklar áhyggjur af þessu atviki.

„Atvikið í Rostov var einstakt og mun ekki endurtaka sig í framtíðinni,“ sagði Sorokin.

„Við munum skoða málið með rússneska knattspyrnusambandinu en það gefur auga leið að það er ekki hægt að fylgjast með hverjum einasta áhorfanda á vellinum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×