Lífið

Stuðningskveðjum rignir yfir Maríu Ólafs

Bjarki Ármannsson skrifar
Stuðningskveðjum hefur ringt yfir Maríu Ólafsdóttur á Facebook-síðu hennar nú í dag.
Stuðningskveðjum hefur ringt yfir Maríu Ólafsdóttur á Facebook-síðu hennar nú í dag. Vísir
Stuðningskveðjum hefur ringt yfir Maríu Ólafsdóttur, fulltrúa Íslands í Eurovision-söngvakeppninni þetta árið, á Facebook-síðu hennar nú í dag. María var ekki meðal þeirra tíu flytjenda sem komust áfram úr hennar riðli í gærkvöldi en í Facebook-færslu eftir keppnina segist hún ganga sátt í burtu frá keppninni.

„Fyrir örfáum mánuðum var ég óþekkt stelpa úr Mosfellsbænum sem átti sér drauma en var of feimin til að framkvæma þá,“ skrifar María. „Í kvöld stóð ég uppi á stærsta sviði fyrir framan milljónir manna og söng af mér rassgatið fyrir hönd Íslendinga.

Sjá einnig: Eurovision-teymið ekki á leið heim strax

Maður getur alltaf gert betur en ég labba sátt í burtu frá keppni, ég gerði mitt besta þessar þrjár mínútur og meira get ég ekki gert,“ bætir hún við.

Fjöldi vina, vandamanna og aðdáenda tjáir sig í ummælum við færsluna og hrósar Maríu fyrir frammistöðu sína í gær.

„That‘s the spirit!“ segir Einar Bárðarson, lagasmiður og umboðsmaður, sem sjálfur hefur reynslu af því að keppa í Eurovision. Hann samdi framlag Íslands til keppninnar árið 2001, Birtu með sveitinni 2 Tricky.

„Frábær pistill,“ skrifar söngvarinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson, sem keppti fyrir Íslands hönd árið 2013 með lagið Ég á líf. „Þetta er mikilvægasta skrefið í skólanum sem bransinn er. Ég er enn ekki búinn að mastera þetta skref. Þú varst og ert frábær, til hamingju með árangurinn.“

Þú stóðst þig vel María Átt framtíðina fyrir þérÞað er ekki auðvelt að verða almenningseign svona ungKæru samlandar...

Posted by Samúel Jón Samúelsson on 21. maí 2015
Sjálfur Björgvin Halldórsson söngvari þakkar fyrir sig, sendir Maríu kveðjur og segir hana bregðast við eins og atvinnumaður. Þá lýsir Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari því hvernig hann horfði á frammistöðu Maríu á hóteli í Grundarfirði ásamt öllu starfsfólki hótelsins og nokkrum Þjóðverjum.

Sjá einnig: „Söng af mér rassgatið fyrir hönd Íslendinga“

„Við vorum öll stolt af þér og ég sérstaklega,“ skrifar Jóhannes Haukur. „Takk fyrir að vera frábær fulltrúi í þjóðaríþróttinni okkar.“

„Innilega til hamingju, kæra María fyrir frábæra frammistöðu og að vera þú sjálf og ekki breyta því,“ skrifar svo Ellen Kristjánsdóttir söngkona annars staðar á síðunni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×