Skoðun

Stuðningráð fyrir veika

Jón Sigurgeirsson skrifar
Árið 1948 komu menn sem útskrifaðir voru af geðsjúkrahúsi í New York saman á kaffihúsi. Þeir áttuðu sig á að margir sem legið höfðu með þeim höfðu komið aftur og aftur og ekki fundið sig í lífinu utan sjúkrahússins. Þeir sem hafa dottið út úr rútínu daglegs lífs þurfa aðlögun að samfélaginu aftur.

Þessi umræða varð upphaf að stofnun fyrsta klúbbhússins sem nú eru orðin að alþjóðlegri hreyfingu. Upphaflega byggðu þeir á orðunum We are not alone eða við stöndum ekki ein.

Félagsskapnum áskotnaðist hús á Manhattan og var gosbrunnur í garðinum. Húsið gekk undir nafninu Fountain House eða brunnhús og er alþjóðahreyfingin kennd við það. Í húsinu mótaðist kerfi sem byggðist upp á því að auka sjálfstraust félaga og skapa andrúmsloft sem var ólíkt því sem þeir höfðu upplifað á sjúkrahúsum. Félagar og starfsfólk vann saman sem jafningjar að öllu sem gera þurfti í starfseminni. Allt rými var aðgengilegt öllum og starfsfólk hafði ekki sér aðstöðu fyrir sig. Allar ákvarðanir voru teknar í samhljómi án atkvæðagreiðslu og stjórn í daglegum rekstri var á herðum félaga og starfsfólks í sameiningu. Dagur í klúbbnum átti að líkjast degi á vinnustað. Með ýmsum ráðum voru félagar studdir til fullrar þátttöku í daglegu lífi með stuðningi til vinnu, í húsnæðisleit og öðru slíku.

Hefur breytt lífi fjölda einstaklinga

Nú er þessi starfsemi alþjóðleg og mótuð af stöðlum og gæðaeftirliti. Rannsóknir í háskólum hafa sýnt að það fé sem varið er til starfseminnar er lítið miðað við þjóðfélagslegan sparnað sem fólginn er í bættri heilsu, meiri atvinnuþátttöku og færri innlögnum þeirra sem njóta góðs af kerfinu. Þá er ekki meðtalinn sá ávinningur sem félagar hafa í bættri heilsu og betra lífi.

Hér á landi er Klúbburinn Geysir í Skipholti 29. Hann er rekinn í anda þessa kerfis. Hann hefur verið gæðavottaður reglulega og staðist fyllstu kröfur. Hann hefur starfað í yfir 16 ár og hefur breytt lífi mikils fjölda einstaklinga. Eina skilyrði fyrir þátttöku er að líða eða hafa liðið af andlegum veikindum. Ég hvet alla sem eru í þeirri stöðu eða þekkja menn í þörf fyrir klúbbinn að kynna sér hann frekar. Hann hefur heimasíðu kgeysir.is. Hægt er að hafa samband í síma 5515166 með t-pósti kgeysir@kgeysir.is eða koma á staðinn.

Höfundur er félagi og stjórnarmaður í Klúbbnum Geysi og í ráðgjafahópi Alþjóðahreyfingar Klúbbhúsa.

 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Sjá meira


×