Tónlist

Stuðmenn kveðja Sjallann á laugardag

Freyr Bjarnason skrifar
Hljómsveitin vinsæla spilar í Sjallanum í hinsta sinn á laugardaginn.
Hljómsveitin vinsæla spilar í Sjallanum í hinsta sinn á laugardaginn. Vísir/Daníel
Stuðmenn eru á leiðinni til Akureyrar í fyrsta skipti í tíu ár fullmannaðir með allar kanónurnar til þess að kveðja með stæl lífseigasta skemmtihús Íslands, Sjallann, sem leggur upp laupana um áramótin.

„Fyrsta giggið okkar þarna var '75. Þetta er að verða 40 ára sameiginleg saga,“ segir Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon. „Það verður stór samkoma á laugardaginn, sett af bæjarstjóra og bæjarstjórn. Við fáum Kristján Jóhannsson til að stíga á stokk, ekki bara stokk heldur Helenustokk,“ bætir hann við. Einnig verður sýnd heimildarmyndin umhverfis Sjallann á átta mínútum.

Samkoman hefst í Sjallanum klukkan 21 með hanastéli, fögrum orðum og tónum. Eftir það verða Stuðmenn með Tívolí-tónleika klukkan 22 og að þeim loknum bjóða þeir upp á „greatest hits“ til heiðurs Sjallanum það sem eftir lifir kvölds.

Þegar þeir ljúka sinni dagskrá taka plötusnúðar við og spanna sögu Sjallans með því að spila vinsælustu lögin sem hafa hljómað í húsinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×