Skoðun

Stúdentar frá MR – sameinist!

Benedikt Jóhannesson skrifar
Nú eru á lífi rúmlega tíu þúsund stúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík. Það er meira en einn af hverjum tuttugu og fimm Íslendingum tuttugu ára og eldri. Stúdentum frá MR þykir vænt um skólann sinn og þeir minnast skólaáranna flestir með hlýju.

Hefðir eru sterkar í MR. Ein sú sterkasta er viljinn til þess að standa sig vel. Nemendur skólans hafa skarað fram úr í keppni af ýmsu tagi ár eftir ár. Tungumál, raungreinar, söngur og stuttmyndagerð eru meðal þeirra sviða þar sem MR-ingar náðu lofsverðum árangri í vor. Þegar í háskóla er komið hafa stúdentar frá skólanum upp til hópa reynst vel undirbúnir og þeir koma vel út í samanburði við nemendur frá frá öðrum skólum.

Góðir starfsmenn og góður andi meðal nemenda fleytir þeim langt. En til að skólinn geti boðið nemendum sínum upp á góða menntun þarf aðstaða og tæki að vera í takt við tímann.

Hollvinafélag Menntaskólans í Reykjavík var stofnað til þess að koma á, efla og viðhalda tengslum milli yngri og eldri nemenda skólans og annarra, sem bera hag skólans fyrir brjósti. Jafnframt vill félagið styðja við uppbyggingu skólans og efla skóla- og félagsstarf MR með því að afla fjár til stuðnings skólastarfi MR.

Hollvinafélagið efnir nú til söfnunar meðal allra núlifandi stúdenta frá MR og hefur sent kröfu í heimabanka þeirra. Fjárhæðin er 2.900 krónur á hvern um sig en þátttaka í söfnuninni er algerlega frjáls og engum skylt að borga. Peningum sem safnað verður mun verða varið til kaupa á tækjum sem nýta má við kennslu, en nefna má að tölvukostur skólans er kominn til ára sinna.

MR hefur á liðnum árum oft notið gjafmildi fyrrum nemenda sem hafa stutt skólann til þess að efla skólastarfið. Stjórn Hollvinafélagsins biður alla stúdenta að bregðast vel við þessari beiðni og leggja þannig sitt af mörkum til þess að efla Menntaskólann í Reykjavík. Reikningurinn er 512-14-402158 og kt. 650214-0720. Margt smátt gerir eitt stórt.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×