Lífið

Stuð í sumarpartýi

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Sigurður Pálsson og Kristín Jóhannesdóttir eru hjón og samstarfsmenn.
Sigurður Pálsson og Kristín Jóhannesdóttir eru hjón og samstarfsmenn. vísir/valli
Mikil stemmning var í Sumarpartýi UN Women í gær í frábæru veðri. Tilefnið var útgáfa samtakanna á taupokum í anda Fokk ofbeldi-herferðarinnar sem fram fór í febrúar. Partýið var haldið í hönnunarversluninni Spark Design á Klapparstíg.

Margt var um manninn og meðal þeirra sem létu sjá sig voru listahjónin Sigurður Pálsson og Kristín Jóhannesdóttir, Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, dansararnir Valgerður Rúnarsdóttir og Berglind „festival“ Pétursdóttir, Sigríður B. Tómasdóttir, verkefnisstjóri Nordisk Forum á Íslandi, og Regína Bjarnadóttir, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×