Sport

Strákurinn fær annað stefnumót með tennisstjörnunni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
John Goehrke og Eugenie Bouchard náðu vel saman.
John Goehrke og Eugenie Bouchard náðu vel saman. Mynd/Twitter-síða Eugenie Bouchard
Eugenie Bouchard er fræg tennisstjarna og það vakti mikla athygli þegar hún stóð sig sitt og fór á stefnumót með strák sem hafði veðjað við hana á Twitter.

Þetta er orðið framhaldsaga því stefnumótið gekk það vel að Eugenie Bouchard hefur samþykkt að fara aftur út með hinum tvítuga John Goehrke.

Goehrke er harður stuðningsmaður New England Patriots í NFL-deildinni og hans menn skiluðu honum ekki aðeins sigri í Super Bowl heldur einnig stefnumóti og nú mögulegu sambandi.

John Goehrke veðjaði við Bouchard á Twitter um að New England Patriots liðið myndi snúa við leiknum og vinna þegar staðan var orðin 21-0 fyrir Atlanta Falcons. New England Patriots átti sögulega endurkomu í leiknum og tryggði sér sigur í framlengingu.

John Goehrke og Eugenie Bouchard fóru meðal annars saman á leik Brooklyn Nets og Milwaukee Bucks í NBA-deildinni í körfubolta og stefnumótið gekk mjög vel. Bandarískir fjölmiðlar fylgjast vel með.

„Þetta var frábært. Hann er venjulegur,“ sagði Eugenie Bouchard við TMZ. „Ég skipulagði stefnumótið. Hann sótti mig á hótelið eins og herramaður. Hann færði mér fallega gjöf og við fórum saman á leikinn. Ég er heppin því hann er venjulegur,“ sagði Bouchard við blaðamanna TMZ en verður annað stefnumót?

„Já örugglega,“ svaraði hin 22 ára gamla Eugenie Bouchard. Hún er í 47. sæti á heimslistanum og komst í úrslitaleik Wimbledon-mótsins 2014 en það var hennar besta ár til þessa.

Það lítur út fyrir að það sem byrjaði sem veðmál á Twitter geti endað í alvöru sambandi. Hlutirnir eru heldur betur að ganga upp hjá hinum tvítuga John Goehrke.  Hann var líka sáttur. „Þetta gekk mjög vel. Besta stefnumótið mitt á ævinni,“ sagði John Goehrke.

Hér fyrir neðan má sjá þau skötuhjú eftir fyrsta stefnumótið þeirra en birti þessa mynd inn á Twitter-síðu sinni.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×