Fótbolti

Strákarnir verða að vinna Armena í kvöld

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Eyjólfur Sverrisson.
Eyjólfur Sverrisson. vísir/pjetur
Íslenska U-21 árs landsliðið í fótbolta mætir því armenska í undankeppni EM 2015 í dag. Leikurinn fer fram á Fylkisvelli og hefst klukkan 16:30. Ísland situr í öðru sæti A-riðils með tólf stig eftir sex leiki, sex stigum á eftir toppliði Frakklands.

Efstu liðin í riðlunum tíu og þau fjögur lið sem eru með bestan árangur í öðru sæti fara í umspil um sæti í lokakeppninni sem verður í Tékklandi.

Ástandið á leikmannahópnum er gott að sögn Eyjólfs Sverrissonar, landsliðsþjálfara: „Það eru flestir heilir, fyrir utan smávægileg meiðsli. Hörður [Björgvin Magnússon] er tábrotinn og Kristján Gauti [Emilsson] var með tognun aftan í læri, en þeir ættu báðir að vera klárir,“ sagði Eyjólfur í samtali við Fréttablaðið í gær.

Ísland vann fyrri leik liðanna í Jerevan með tveimur mörkum gegn einu, en leikurinn úti fór fram í rúmlega 30 stiga hita. Eyjólfur segir Armenana erfiða viðureignar:

„Þetta eru fljótir og teknískir leikmenn sem eru ákveðnir og ákafir. En við erum sterkari en þeir í föstum leikatriðum og ættum að geta nýtt okkur það. Bæði mörkin okkar í leiknum ytra komu eftir skyndisóknir, en ég geri ekki ráð fyrir að Armenarnir verði jafn framarlega á vellinum í dag og þá.“

Eftir leikinn gegn Armeníu heldur íslenska liðið til Auxerre þar sem það mætir því franska á mánudaginn. Eyjólfur segir að fjögur stig úr leikjunum tveimur komi Íslandi í góðu stöðu upp á umspilið að gera:

„Við þurfum allavega að vinna Armeníu og það gæti verið að við þyrftum eitt stig á móti Frökkum. Við vitum samt betur hvernig landið liggur á föstudaginn þegar umferðin er búin.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×