Fótbolti

Strákarnir spila tvo vináttuleiki við Kanada í janúar

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Heimir og Lars fá tækifæri til að sjá aðra leikmenn spreyta sig í janúar.
Heimir og Lars fá tækifæri til að sjá aðra leikmenn spreyta sig í janúar. vísir/pjetur
Íslenska landsliðið í knattspyrnu spilar tvo vináttuleiki við Kanada í janúar, en knattspyrnusambönd þjóðanna hafa komist að samkomulagi um leikstað og leiktíma.

Leikirnir fara fram í Flórída í Bandaríkjunum og verður spilað þann 16. og 19. janúar, að því fram kemur á vef KSÍ.

Ekki er um alþjóðlega leikdaga að ræða þannig eins og vanalega í janúarleikjunum fá leikmenn sem hafa staðið fyrir utan byrjunarliðið og landsliðshópinn að spreyta sig.

Ísland og Kanada hafa einu sinni mæst á knattspyrnuvellinum, en það var á Laugardalsvellinum árið 2007. Liðin skildu þá jöfn, 1-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×