Handbolti

Strákarnir okkar án Arons: „Ólafur fær mikla ábyrgð sem hann stendur vonandi undir“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Aron Pálmarsson verður ekki með.
Aron Pálmarsson verður ekki með. vísir/epa/vilhelm
„Þetta er auðvitað slæmt. Það segir sig sjálft. Aron Pálmarsson er leikmaður sem er erfitt að leysa af. Þú fyllir ekkert í þetta skarð.“

Þetta segir Gunnar Magnússon, þjálfari Íslandsmeistara Hauka í handbolta, um þau skelfilegu tíðindi að langbesti handboltamaður þjóðarinnar og einn sá besti í heimi, Aron Pálmarsson, verður ekki með strákunum okkar á HM í Frakklandi.

Sjá einnig:Þetta er ógeðslega leiðinlegt

Aron er búinn að vera meiddur frá því í nóvember og hefur lítið sem ekkert æft í langan tíma. Læknalið íslenska landsliðsins tók endanlega ákvörðun um það í dag að leikstjórnandinn magnaði er ekki í standi til að spila.

„Þetta er eitthvað sem menn voru búnir að búa sig undir því það lá alveg í loftinum að hann yrði ekki með því hann er ekki enn þá kominn í almennilega æfingu. Ég held að menn hafi undirbúið sig fyrir þetta hægt og rólega en eðlilega var liðið tilbúið að bíða fram á síðustu stundu með þessa ákvörðun,“ segir Gunnar.

Ólafur Guðmundsson er nú maður númer eitt vinstra megin.vísir/epa
Þessar fréttir breyta miklu hjá íslenska liðinu á mótinu enda Aron augljóslega algjör lykilmaður. Sá leikmaður sem getur alltaf búið til eitthvað úr engu. Nú þurfa aðrir menn að stíga upp og þá sérstaklega félagi Arons úr Hafnarfirðinum, Ólafur Guðmundsson.

„Eins og staðan er núna þýðir þetta að mikið mun mæða á Ólafi Guðmundssyni og svo er spurning með Gunnar Stein og Arnór Atlason. Svo er Sigurbergur Sveinsson á upphaflega listanum þannig kannski skoða menn það en ég er ekki viss. Plan b, held ég, sé bara að Gunnar Steinn og Arnór Atla verði Ólafi til aðstoðar,“ segir Gunnar en þá þarf Ólafur Guðmundsson að spila eins og allir vita að hann getur.

Sjá einnig:Stefán Rafn kominn til Metz

„Nú fær Ólafur mikla ábyrgð og vonandi stendur hann undir henni. Við höfum séð hann eiga frábæra leiki með landsliðinu en það sem hefur gerst hingað til er að hann er of óstöðugur í sínum leik. Hann þarf meiri stöðugleika.“

Ísland er í riðli með Spáni, Slóveníu, Makedóníu, Túnis og Angóla. Fjögur efstu liðin komast upp úr riðli og fara í 16 liða úrslit. Breyta þessi tíðindi einhverju um heildarmyndina?

„Ég geri enn þá vonir um að við vinnum þrjá leiki á móti Túnis, Angóla og Makedóníu. Bónusleikirnir eru á móti Spáni og Slóvenum. Ég svona vona að við klárum þessa þrjá leiki og komust í 16 liða úrslit en svo er þetta mót bara mikil fjárfesting fyrir framtíðina,“ segir Gunnar Magnússon.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM í Frakklandi. Vísir er með öflugt fréttateymi á mótinu sem færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir

Aron verður ekki með á HM

Það varð ljóst nú rétt fyrir hádegi að besti leikmaður íslenska handboltalandsliðsins, Aron Pálmarsson, verður ekki með á HM í Frakklandi.

Þetta er ógeðslega leiðinlegt

Aron Pálmarsson kom með íslenska landsliðinu til Metz. Það er ekki enn ljóst hvort hann spilar með landsliðinu á HM. Hann fékk sprautu fyrir um viku sem hann vonast til að hjálpi sér að geta spilað á mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×