Fótbolti

Strákarnir fengu sérinnfluttan þorsk frá Íslandi

Óskar Ófeigur Jónsson í Amsterdam skrifar
Strákarnir gera sig klára fyrir æfinguna í dag.
Strákarnir gera sig klára fyrir æfinguna í dag. Vísir/Valli
Íslenski hópurinn kvartar ekki yfir matnum hér úti í Hollandi en líkt og í síðustu leikjum þá er íslenskur kokkur hluti af starfsliði íslenska karlalandsliðsins.

Að þessu sinni er með liðinu Einar Björn Árnason sem er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum þar sem hann hefur komið sér fyrir í Höllinni með veisluþjónustuna „Einsa kalda“.

Einar Björn hefur yfirumsjón með matnum og að landsliðsmennirnir fái nóg af rétta matnum til þess að vera sem best undirbúnir fyrir leikinn á móti Hollandi á fimmtudaginn.

Allt hráefnið er héðan frá Hollandi nema að Einar Björn tók með sér þorsk frá Íslandi og strákarnir hafa þegar fengið að gæða sér á sérinnfluttum þorski frá Íslandi.

Það fékkst ekki staðfest hvort að þorskurinn hafi verið veiddur við Vestmannaeyjar en þeir sem þekkja Einar Björn Árnason væri nú örugglega tilbúnir að veðja á það að þorskurinn góði hafi bæði verið veiddur og verkaður við og í Vestmannaeyjum.

Kjúklinga Fajitas sem var matinn í gærkvöldi fór líka jafnvel ofan í íslenska hópinn en það var líka steik í boði fyrir þá sem voru sérstaklega svangir.

Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, og Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi íslenska liðsins, hrósuðu bæði matnum og Einsi kaldi er því að standa sig vel hér úti í Amsterdam.


Tengdar fréttir

Kolbeinn í löngu viðtali hjá Ajax TV

Kolbeinn Sigþórsson, framherji íslenska liðsins, yfirgaf Ajax í sumar eftir fjögur tímabil í Amsterdam. Þegar Kolbeinn mætti á blaðamannaviðburð í dag þá beið hans sjónvarpsfólk frá Ajax TV.

Birkir Már: Ég held að Robben muni ekkert eftir mér

Birkir Már Sævarsson hefur verið fastamaður í hægri bakverðinum í síðustu leikjum Íslands í undankeppni EM 2016 og það eru góðar líkur á að svo verði áfram á móti Hollandi á fimmtudaginn.

Birkir Bjarna bætir við sig fimmta tungumálinu

Birkir Bjarnason segir að honum líki lífið vel í Sviss eftir flutningana frá Ítalíu í sumar. Birkir leikur með Basel sem hefur farið vel af stað í deildinni þótt liðinu hafi skrikað fótur í forkeppni Meistaradeildar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×