Fótbolti

Strákarnir fengu að sjá hvar búningarnir þeirra eru framleiddir | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Strákarnir fengu að sjá hvar treyjan er búin til.
Strákarnir fengu að sjá hvar treyjan er búin til. vísir/anton brink
Strákarnir okkar í íslenska landsliðinu í fótbolta eru staddir í Parma á Ítalíu þar sem þeir undirbúa sig fyrir leik liðsins gegn Króatíu í undankeppni HM 2018. Leikurinn fer fram í Zagreb á laugardaginn.

Íslenska liðið er í Parma í boði íþróttavöruframleiðandans Errea sem gerir íslenska landsliðsbúninginn en ítalska fyrirtækið vann kapphlaupið um framleiðslu á nýjum búningi Íslands fyrir tveimur árum.

Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, virtist sáttur með heimsóknina en hann tók sjálfu af sér fyrir utan höfuðstöðvar Errea og þakkaði fyrir sig.

Strákarnir okkar fengu frí á æfingu í gær til að heimsækja Errea og sinna öðru en á föstudaginn flýgur liðið til Zagreb.

Myndband frá heimsókninni má sjá hér að neðan.

Thanks for having us today @erreasport #iceland #parma #errea

A photo posted by Aron Gunnarsson (@arongunnarsson) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×