Innlent

Strætó fór út af rétt við Hafnarfjall

Birgir Olgeirsson skrifar
Sendur var annar vagn á svæðið til að sækja farþegana og eru þeir nú á leið til Akureyrar.
Sendur var annar vagn á svæðið til að sækja farþegana og eru þeir nú á leið til Akureyrar. vísir/pjetur
„Bílstjórinn sagði að enginn hefði slasast,“ segir Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó bs., en strætisvagn á vegum Strætó bs. fór út af veginum við Hafnarfjall rétt fyrir klukkan 10 í morgun.

Greint var fyrst frá málinu á mbl.is.

Var strætisvagninn á leið frá Reykajvík til Akureyrar en Jóhannes segir vagnstjórann hafa haft samband við sig og tilkynnt að enginn hefði slasast. Jóhannes segir að vagninn hafi runnið fremur hægt út af.

Sendur var annar vagn á svæðið til að sækja farþegana og eru þeir nú á leið til Akureyrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×