Sport

Story: Ætla að láta reyna á þol Gunnars

Henry Birgir Gunnarsson í Stokkhólmi skrifar
„Ég mæti nokkuð bjartsýnn til leiks enda veit ég vel hvað ég get,“ segir Bandaríkjamaðurinn Rick Story öruggur með sig er hann settist niður með blaðamanni Fréttablaðsins á Grand-hótelinu í Stokkhólmi í gær.

Story er ekki maður mikill vexti og ekkert sérstaklega ógnandi heldur. Þetta er viðkunnanlegur náungi sem reyndi að gefa af sér á fjölmiðladeginum í gær þó svo hann væri augljóslega dauðþreyttur.

„Ég veit vel að Gunnar er að æfa eins og skepna til þess að vinna enn einn bardagann. Ég held aftur á móti að það verði mjög erfitt fyrir hann að vinna mig.“

Story er orðinn þrítugur og gríðarlega reyndur í MMA eða blönduðum bardagalistum. Fyrir fjórum árum lagði hann ríkjandi meistara í veltivigtinni, Johny Hendricks, þannig að hér er enginn aukvisi á ferð. Hvern telur hann vera lykilinn að því að vinna Gunnar Nelson?

„Ég held að lykillinn að því að leggja Gunnar sé að komast í seinni lotur bardaga með honum. Þannig er hægt að reyna á þol hans. Þegar þrek hans fer að þverra þá gef ég í og næ yfirhöndinni,“ sagði Story ákveðinn og trúði því sem hann var að segja. „Það er eitt af lykilatriðunum við að vinna Gunnar en ég mun ekki gefa meira upp í bili,“ sagði Story og glotti við tönn.

Story segist venjulega vilja þreyta andstæðinga sína og segir að bæði hann og Gunnar vilji fara varlega inn í sína bardaga.

Hér að ofan má sjá viðtalið við Story í heild sinni.

ætlar sér sigur Rick Story sagði blaðamönnum sögu sína í Stokkhólmi í gær.fréttablaðið/böddi
„Það segja allir að við förum báðir rólega af stað en kannski breyti ég til núna og fer af fullum krafti strax frá upphafi. Við ætlum ekki að láta neinum leiðast. Ég fer aldrei með það að markmiði í hringinn að lenda í leiðinlegum bardaga. Ég mun gera mitt besta til þess að skemmta fólkinu. Ég verð mættur í búrið til þess að reyna að klára bardagann.“

Sanna mig með sigri

Story hefur unnið þrjá af síðustu fimm bardögum sínum og sigur gegn Gunnari gæti kveikt nýtt líf í UFC-ferli hans.

„Þetta er frábært tækifæri fyrir mig til þess að komast upp styrkleikalistinn. Þetta er aðalbardagi og gegn Gunnari sem hefur aldrei tapað í UFC. Gunnar er alvöru maður en ef ég vinn þá sýni ég fólki að ég á heima á meðal tíu efstu manna í okkar flokki.“

Story hefur aðeins einu sinni hitt Gunnar og þekkir hann ekki. Hann segist þó vita að Gunnar sé geðþekkur náungi. „Ég hef séð hann í viðtölum og hitti hann við komuna hingað. Hann virðist hafa svipaðan persónuleika og ég. Ég ber engan illan hug til Gunnars en þegar við förum í hringinn þá tekur grimmdin við. Við getum verið vinir eftir bardagann og það er ekkert mál. En þegar búrinu er lokað þá erum við ekki vinir.“

Bardagi Gunnars Nelson verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport á laugardagskvöldið. Fáðu þér áskrift í síma 512-5100 eða smelltu hér.

MMA

Tengdar fréttir

Dreymir ekki um Vegas

Gunnar Nelson segir að það séu að verða valdaskipti í UFC-heiminum. Ný kynslóð bardagakappa, betri en þeir sem fyrir eru, séu að taka yfir íþróttina.

Leiðin að búrinu: Gunnar Nelson vs. Rick Story

Aðeins fimm dagar eru í UFC bardaga Gunnars Nelson í Stokkhólmi. Gunnar mætir Bandaríkjamanninum Rick Story í aðalbardaga kvöldsins í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×