Stórt skref í átt að fullnaðarsigri

Fréttablaðið Innlent 10. febrúar 2012 05:00
Alistair Grétarsson segir mikil tímamót felast í því að ekki hafi komið upp tilfelli af lömunarveiki á Indlandi í rúmlega ár. Það sé mikilvægt skref í að útrýma sjúkdómnum á heimsvísu.
Alistair Grétarsson segir mikil tímamót felast í því að ekki hafi komið upp tilfelli af lömunarveiki á Indlandi í rúmlega ár. Það sé mikilvægt skref í að útrýma sjúkdómnum á heimsvísu.
„Þetta eru mikil tímamót og merkur áfangi,“ segir Alistair Grétarsson, starfsmaður UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Indlandi, en nú er rúmt ár síðan síðasta staðfesta tilfellið af lömunarveiki kom upp í landinu.

Lömunarveiki er bráðsmitandi veirusjúkdómur sem hefur lengi hrjáð mannkynið, en einskorðast nú nær alfarið við fátækustu landsvæði heims.

„Þetta er afar mikilvægt því lengi hefur verið talið erfiðast að hefta útbreiðslu lömunarveiki á Indlandi af öllum löndum og hér komu jafnan upp flest tilfelli á hverju ári allt fram til ársins 2009,“ segir Alistair. Það ár greindist nær helmingur allra tilfella í heiminum á Indlandi, eða 741 af 1.604.

„Stóri áfanginn liggur líka í því að nú er búið að byrgja fyrir það að smit komi upp hér á Indlandi og breiðist út til annarra landa. Sjúkdómurinn ferðast með fólki milli landa og þegar stórt og fjölmennt land eins og Indland er tekið út úr jöfnunni á heimsvísu er það mikill áfangi í að komast alla leið og útrýma sjúkdómnum algerlega.“

Alistair segir það enn þá vera lokatakmarkið og nú sjái loks fyrir endann á baráttunni.

„Við erum nær því en nokkru sinni fyrr, en einmitt þess vegna hefur aldrei verið eins mikilvægt að halda áfram að efla baráttuna. Við erum á síðustu metrunum, en þá er hlassið líka oft þyngst. Það er síður en svo tími til að slaka á þó við fögnum vissulega þessum áfanga.“


Fátækustu svæðin erfiðust
Lömunarveiki herjaði á fólk um allan heim, þar með talið Vesturlönd, en með tilkomu bóluefnis um miðja síðustu öld var sjúkdómnum úthýst frá öllum þróuðum löndum.
Í fyrra greindist lömunarveiki í sautján löndum sem, fyrir utan Kína, eru öll í hópi fátækustu landa heims. Þar af eru fjögur lönd þar sem sjúkdómurinn er talinn landlægur, en fyrir utan Indland eru Pakistan, Afganistan og Nígería í þeim hópi. Staða Indlands gæti þó breyst á næstu dögum ef staðfest verður formlega að ekkert tilfelli hafi komið upp þar í landi frá því í janúar í fyrra.
„Nú á dögum hefst sjúkdómurinn við á þeim stöðum í heiminum þar sem ástandið og aðgengið er verst og fátæktin mest,“ segir Alistair.
„Fyrir utan löndin þar sem veikin er landlæg eru fleiri lönd þar sem veikin kemur upp hvað eftir annað. Veiran breiðist út með fólki sem ferðast milli landa, og þess vegna mun hættan alltaf vera til staðar þangað til sjúkdómnum hefur verið endanlega útrýmt.“


Fræðsla er lykillinn að árangri
Átakið til útrýmingar lömunarveiki hefur staðið í marga áratugi, en það er á síðustu tveimur árum sem mestur árangur hefur náðst með bólusetningum barna og aukinni fræðslu. Alistair segir að margt liggi þar að baki, en ekki síst ákveðni indverskra stjórnvalda sem hafi varið miklum fjármunum síðustu ár og áratugi til þess að útrýma lömunarveiki með stuðningi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, UNICEF og fleiri aðila eins og Rótarý-hreyfingarinnar.
„Það sem er einstakt við Indland er stærðin og umfangið. Hér eru 2,3 milljónir sjálfboðaliða sem heimsækja 209 milljónir húsa að minnsta kosti tvisvar á hverju ári og bólusetja 170 milljónir barna undir 5 ára aldri við lömunarveiki. Þetta er því sambland af staðfestu indverskra stjórnvalda og alþjóðastofnana, og vilja samfélagsins sjálfs. Einnig hafa margir frægir einstaklingar tekið þátt í að vekja athygli á málefninu um allt land þar sem farið er til að hitta börn og bólusetja allt upp í sjö sinnum á ári.“
Alistair segir að ónæmi barnanna verði sterkara því oftar sem þau séu bólusett, og mikil áhersla sé lögð á að gefa börnum á hættusvæðum oftar bóluefni sem gefið er í munndropum.
Alistair segir mikið atriði að afla verkefninu velvildar, bæði hjá foreldrum og framámönnum í samfélögunum. Því sé mikil vinna lögð í að byggja upp þekkingu og skilning meðal almennings.
„Það er ekki sjálfsagt að fólk vilji láta bólusetja börnin sín. Í ýmsum samfélögum hefur verið viðvarandi trú að bóluefnið sé hluti af samsæri Vesturlanda, gefið til að gera börnin ófrjó. Á afskekktum svæðum eru svo almennt ríkjandi efasemdir í garð utanaðkomandi fólks.“
Þar kemur einmitt til kasta UNICEF sem sendir sjálfboðaliða út um allt Indlandi til að uppfræða fólk og fá það til að trúa á verkefnið.
„Sjálfboðaliðar á okkar vegum ganga á milli heimila þar sem þeir hitta fólk með reglulegu millibili og ræða við það, ekki aðeins um bólusetningar, heldur líka almennt um hreinlæti, heilbrigðismál og mikilvægi brjóstagjafar. Það getur hins vegar haft áhrif á bólusetningarnar því að ef börnin veikjast, til dæmis ef þau fá niðurgang, er hætta á að bólusetningin spillist.“


Takmarkið innan seilingar
Tilfellum um lömunarveiki hefur fækkað á heimsvísu síðustu árin þar sem um 2.000 tilfelli greindust árið 2006 en 647 í fyrra. Alistair segir því mikilvægt að missa ekki dampinn.
„Við munum halda okkar striki og halda áfram að bólusetja þessa stóru hópa barna. Stærsta hættan sem steðjar nú að er í hópi farandverkafólks sem er sífellt á ferðinni og því er erfitt að hitta börnin þess með reglulegu millibili til að gefa þeim bóluefni. Svo er líka hætta á að fullorðnir beri veikina með sér því að fólk getur borið sjúkdóminn án þess að sýna einkenni.“
Annað mikilvægt atriði, segir Alistair sé að hafa viðbragðsteymi tilbúið til að grípa inn í ef upp kemur tilfelli. Þá þurfi að bólusetja hundruð þúsunda barna umsvifalaust.
„Það er hins vegar merkilegt að líta á verkefnið í stærra samhengi því að okkur hefur aðeins tekist að útrýma einum sjúkdómi í sögu mannkynsins og það er bólusótt. En ef okkur tekst það sama með lömunarveiki á næstu árum verður það sannarlega sögulegt afrek.“

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 26. maí. 2012 13:32

Skjaldborg hafin á Patreksfirði

Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg á Patreksfirði hófst í gærkvöldi. Opnunarmynd hátíðarinna...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 13:07

Árleg sýning Ljósmyndaskólans hefst í dag

Árleg ljósmyndasýning fyrsta árs nema við Ljósmyndaskólann opnar í dag. Alls munu 19 nemen...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 12:47

Ætla að halda alþjóðlegt Eurovision partý

Sjálfboðaliðar á vegum AU, Alþjóðlegra ungmennaskipta ætla að halda fjölþjóðlegt partý í k...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 12:45

Óvæntir gestir í för með íslenska Eurovision-hópnum

Svíum er spáð sigri en Íslendingum sautjánda sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 12:45

Ákæra vegna brots á þagnarskyldu opinberra starfsmanna fordæmalaus

Aldrei í réttarsögunni hefur verið ákært fyrir brot á þagnarskyldu opinberra starfsmanna, ...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 12:08

Skiptar skoðanir um fjármögnun Vaðlaheiðaganga

Skiptar skoðanir eru á meðal stjórnarliða um frumvarp fjármálaráðherra um heimild til að f...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 11:36

Viðrar vel á Hvítasunnu

Svo virðist sem að vel muni viðra um Hvítasunnuhelgina. Hiti á landinu hefur aukist jafnt ...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 10:45

Rætt um Vaðlaheiðagöng fram eftir miðnætti

Umræður um frumvarp fjármálaráðherra um heimild til að fjármagna gerð jarðganga undir Vaðl...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 10:30

Nítján ára dúx á leið í Listaháskólann

Auður Lóa Guðnadóttir dúxaði í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti, en útskriftarathöfnin var...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 10:10

"Ekkert fréttnæmt" af lögreglu í nótt

Nóttin var tíðindalítil hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Það tíðindalítil, að ...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 09:32

Með dólgslæti á Akureyri - stakk sér í sjóinn

Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslu lögreglunnar á Akureyri í nótt. Maðurinn hafði...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 09:00

Góðgerðarstarf líður fyrir tekjuhrun í spilakössum

Tekjur Íslandsspila hafa lækkað um fimmtung frá hruni. Góðgerðarstarf Rauða krossins, Land...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 08:30

Meirihluti vill kjósa um Evrópusambandið

Tæplega sex af tíu vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi aðildarviðræðum við ESB...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 08:00

Átti ekki von á að grunur um brot kæmi upp

Sérstakur saksóknari var meðvitaður um fyrirætlanir þeirra Guðmundar Hauks Gunnarssonar og...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 07:30

Hentar ekki öllum að vera viðskiptavinir MP

MP Banki mun leggja nýtt gjald á viðskiptavini sem annað hvort eiga eða skulda minna en tv...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 06:45

Verðbólga lækkaði merkjanlega

Tólf mánaða verðbólga lækkaði úr 6,4 prósentum í 5,4 prósent í maímælingu Hagstofunnar. Va...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 06:00

Risaratsjár Monge forða geimárekstrum

Franska skipið Monge liggur við Reykjavíkurhöfn. Það er einstaklega vel tækjum búið og fyl...  

Meira
Innlent 26. maí. 2012 04:00

Viðræður um fjármögnun hefjast í næstu viku

Formlegar viðræður um fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar hefjast í næstu viku. Að sögn Ingvar...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:54

Framhaldið af Hungurleikunum komið út á íslensku

Slökkviliðsbíll var til taks þegar bóksalar sóttu framhald Hungurleikanna, Eldar kvikna, á...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:45

Matarolía af ökrum íslenskra bænda

Íslensk matarolía af akrinum er það nýjasta sem íslenskir bændur bjóða landsmönnum en þett...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 21:02

Mikill spenningur í Bakú - Gréta og Jónsi tilbúin

„Ég held að þetta fari þannig að Svíþjóð vinni," segir Gréta Salóme Stefánsdóttir, s...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 20:02

Jónsa og Grétu Salóme spáð 2. sæti

OGAE, eða Organisation Générale des Amateurs d l'Eurovision, er heiti á alþjóðlegum samtök...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 18:13

Hvað gerum við ef við vinnum Eurovision?

"Það er ekki til nein viðbragðsáætlun í þessu máli,“ segir Katrín Jakobsdóttir, menn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 19:45

Catalina markaði djúp spor í flugsögu Íslands

Íslenskir flugáhugamenn fá langþráðan draum uppfylltan á Reykjavíkurflugvelli um helgina; ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 19:20

Raunhæft að ljúka viðræðunum fyrir kosningar

Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, segist telja að öll spilin í aðildarviðræð...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 18:30

Lögreglumenn fóru að selja trúnaðarupplýsingar haustið 2011

Lögreglumennirnir tveir sem sérstakur saksóknari hefur kært til ríkissaksóknara vegna brot...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:50

Harður árekstur í Hafnarfirði

Harður tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og Álftanesvegar fyrir s...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:34

Þriðjungur ökumanna óku of hratt

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Langarima í Reykjavík í dag. Samkvæmt tilkynningu lögreglu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 17:32

Kannabis í kjallara

Tvö hundruð grömm af marijúana í sölupakkningum fundust við húsleit í kjallaraíbúð í miðbo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:55

Ólafur og Þóra jöfn samkvæmt nýrri könnun MMR

Nákvæmlega sami fjöldi myndi kjósa Þóru Arnórsdóttur og Ólaf Ragnar Grímsson í forsetakosn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:33

Segir aðgerðirnar bitna mest á höfuðborgarsvæðinu

"Þessar aðgerðir bitna mest á höfuðborgarsvæðinu, meirihluti þeirra sem láta af störfum er...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 16:30

Safna hjólum fyrir efnaminni börn

Hjól sem standa óhreyfð inni í bílskúr geta nú öðlast nýtt líf. Barnaheill og hjólreiðakep...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:47

Grunaðir innbrotsþjófar úrskurðaðir í gæsluvarðhald

Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:39

Hlakkar til að hefja störf á nýjum vettvangi

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segist hlakka til að hefja störf hjá OPUS lö...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 15:37

Hvetur til áhlaups á Landsbankann

Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, hvetur íbúa á Fáskrúðsfirði og Esk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 14:21

Björn Valur: "Það er eitthvað súrt við þetta“

"Þetta slær menn,“ segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstrihreyfingari...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:40

Krakkar í Álfhólsskóla komu færandi hendi

Hressir krakkar í 7 EJ í Álfhólsskóla í Kópavogi komu með gömul hjól og gáfu í söfnun Barn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 13:26

Yfirlögregluþjónn kærir falsaða undirskrift á lista Ástþórs

Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, hefur kært fölsun á undirskrift sinni á m...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:28

Segir eðlilegt að lögreglan rannsaki framboðslista

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi hefur skilað hátt í 200 undirskriftum til viðbótar í ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:25

Óupplýst hver stóð á bak við stærsta fíkniefnainnflutning síðasta árs

Enn er óupplýst hverjir stóðu að innflutningi tíu kílóa af amfetamíni og rúmlega átta þúsu...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 12:23

Fangelsismálastjóri: Reynslulausn fylgja ströng skilyrði

Rúnar Bjarki Ríkharðsson, sem fékk einn þyngsta dóm sem fallið hefur hér á landi, fyrir mo...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:38

Geir Haarde kominn í nýja vinnu

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem r...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:27

Með loftbyssu og skotfæri í Leifsstöð

Karlmaður var með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í fyrra...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:16

Borgin kaupir dráttarvélar fyrir 160 milljónir

Reykjavíkurborg áformar að kaupa dráttarvélar fyrir 160 milljónir króna á næstunni. Bréf f...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 11:10

Ákærður fyrir hættulega líkamsárás

Tuttugu og átta ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkam...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 10:28

Bjóða upp á nettengingu í háloftunum

Þeir sem fljúga með flugfélaginu Norwegian frá Keflavík til Osló í sumar geta verið netten...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:55

Fundu fíkniefni á farþega

Lögreglan á Akranesi stöðvaði í gærkvöldi bifreið sem var á ferð við bæinn. Þrír menn reyn...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 09:30

Tæplega fimm ára fangelsi í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson, höfuðpaurinn í Straumsvíkurmáinu, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs ósk...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 08:59

Dómur kveðinn upp í stóru fíkniefnamáli

Dómur verður kveðinn upp í einu stærsta fíkniefnamáli síðasta árs klukkan korter yfir níu ...  

Meira
Innlent 25. maí. 2012 06:18

Ólafur Ragnar tekur forystu

Stuðningur við áframhaldandi setu Ólafs Ragnars Grímssonar í embætti forseta hefur aukist ...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Stórt skref í átt að fullnaðarsigri