Sport

Stórslasaður eftir að hafa fengið hafnabolta í andlitið | Myndband

Stanton fær hér boltann í andlitið.
Stanton fær hér boltann í andlitið. vísir/getty
Hafnaboltamaðurinn Giancarlo Stanton er á ágætum batavegi eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum í síðustu viku.

Þá fékk hann grjótharðan boltann beint í kinnina á yfir 100 km/h. Hann er farinn að brosa og vonast til þess að snúa aftur á völlinn eftir einhverjar vikur.

Leikmaðurinn birti mynd af sér á Instagram í gær þar sem sést hversu illa andlit hans var leikið eftir að hafa fengið boltann í andlitið. Hin myndin er tekin fimm dögum síðar og er allt annað að sjá manninn.

Þá mynd má sjá hér að neðan sem og myndband af atvikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×