Íslenski boltinn

Stórsigur Stjörnunnar í Wales

Vísir/Valgarð
Stjarnan er komin áfram í aðra umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA eftir 8-0 samanlagðan sigur á Bangor City frá Wales.

Síðari leikurinn fór fram ytra í kvöld og unnu Stjörnumenn 4-0 sigur, rétt eins og í fyrri leiknum.

Staðan að loknum fyrri hálfleik var markalaus en eftir að Martin Rauschenberg braut ísinn með glæsilegu marki snemma í þeim síðari opnaðist fyrir flóðgáttirnar.

Arnar Már Björgvinsson skoraði tvívegis og Atli Jóhannsson innsiglaði svo 4-0 sigur undir lok leiksins.

Stjarnan mætir Motherwell frá Skotlandi í næstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×