Körfubolti

Stórsigur hjá Hlyni gegn Jakobi í Íslendingaslag

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Hlynur skoraði átta stig.
Hlynur skoraði átta stig. vísir/valli

Sundsvall Dragons vann 19 stiga sigur á Borås Basket, 93-72, í tíundu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld.

Hlynur Bæringsson, landsliðsfyrirliði, leikur með Sundsvall en Jakob Sigurðarson, fyrrverandi samherji Hlyns hjá Sundsvall, er á mála hjá Borås.

Drekarnir unnu fyrsta leikhlutann 23-14 og litu ekki um öxl. Þeir voru yfir nær allan tímann og unnu sannfærandi sigur.

Hlynur skoraði átta stig í kvöld, tók 15 fráköst og gaf fimm stoðsendingar en Jakob hafði hægt um sig oh skoraði aðeins sjö stig fyrir gestina.

Sundsvall komst upp í annað sæti deildarinnar með sigrinum en Boras er í fjórða sætið. Bæði lið eru þó með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×