Enski boltinn

Stórsigur hjá Atletico

Smári Jökull Jónsson skrifar
Carrasco skoraði þrennu fyrir Atletico í dag.
Carrasco skoraði þrennu fyrir Atletico í dag. Vísir/Getty
Atletico Madrid vann 7-1 sigur á Granada í spænsku deildinni í dag. Atletico er í efsta sæti deildarinnar.

Atletico er enn ósigraði í deildinni til þessa en fyrir leikinn var Granada neðst með einungis tvö stig eftir sjö leiki.

Það voru reyndar gestirnir sem skoruðu fyrsta mark leiksins en það gerði Isaac Cuenca á 18.mínútu.

Heimamenn voru þó komnir með forystu fyrir leikhlé. Yannick Ferreira Carrasco skoraði tvö mörk og bætti svo við því þriðja á 61.mínútu.

Leikmenn Atletico voru þó langt í frá hættir. Nico Gaitan skoraði fjórða markið á 63.mínútu og hann bætti við öðru marki sínu þegar níu mínútur voru eftir.

Angel Correa og Tiago skoruðu tvö síðustu mörk liðsins og 7-1 stórsigur staðreynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×